Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. febrúar 2026 11:31 Konan var að stíga út úr rútu á bílastæði á Egilsstöðum þegar slysið varð. vísir/Vilhelm Rútubílstjóri hjá ÍS-Travel hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa keyrt yfir konu með þeim afleiðingum að hún slasaðist alvarlega. Hann var dæmdur til að greiða konunni 1,3 milljónir króna í miskabætur.
Vísir fjallaði um slysið í ágúst 2024. Konan var komin til Egilsstaða í rútu frá álveri Alcoa á Reyðarfirði þar sem hún starfaði. Hún var að stíga úr rútunni um afturdyrnar þegar rútunni var ekið af stað og dyrnum lokað áður en hún komst út. Við það féll hún í götuna og afturhjólum rútunnar var ekið yfir báða fætur hennar. Samstarfsfólk konunnar hjá Alcoa varð vitni að slysinu. Konan var flutt með sjúkraflugi til Akureyrar þar sem hún gekkst undir sex aðgerðir. Hún lá nærri tvo mánuði á sjúkrahúsinu og var lengi í endurhæfingu. Rútubílstjórinn var ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Hann neitaði sök og hélt því fram að um óhapp hefði verið að ræða. Hann sagðist hafa gætt að sér, litið í spegla og ekki séð farþegann. Þá vísaði hann til bilunar í öryggisbúnaði aftari hurðar, meðal annars skynjara sem átti að opna hurðina ef hún lenti á fyrirstöðu. Fyrir dómi kom fram að þessi öryggisbúnaður virkaði ekki og að gaumflauta sem átti að vara við opnum hurðum hafði verið aftengd. Dómurinn taldi sannað að bílstjórinn, sem síðar hefur hætt störfum fyrir fyrirtækið, hefði ekki sýnt nægilega aðgæslu. Honum hefði verið kunnugt um galla í öryggisbúnaði, slæma lýsingu við aftari útgang og blinda punkta í rútunni. Þrátt fyrir það hefði hann ekið af stað áður en fullvíst var að farþegar væru komnir örugglega frá rútunni. Dómurinn taldi ekki sannað að hann hefði ekið ógætilega hratt. Vanrækslan hefði falist í því að tryggja ekki öryggi farþega á leið frá borði. Hann fékk þrjátíu daga skilorðsbundinn dóm og var sviptur ökurétti í þrjá mánuði. Krafist var fimm milljóna króna í miskabætur til handa konunni. Dómurinn taldi háttsemina jafngilda stórkostlegu gáleysi og dæmdi henni 1,3 milljónir króna í miskabætur, auk vaxta og málskostnaðar. Bílstjóranum var einnig gert að greiða rúma milljón króna í sakarkostnað.
Dómsmál Múlaþing Sjúkrahúsið á Akureyri Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Sjá meira