Tveir starfsmenn á heilsugæslu með berklasmit Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 20. febrúar 2026 11:05 Heilsugæslan Miðbæ. Vísir/Vilhelm Tveir starfsmenn einnar heilsugæslustöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH) greindust með berklasmit við skimun á starfsfólki stöðvarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu.
Þar segir að þó bakterían hafi greinst í starfsfólkinu sé það ekki smitandi og sýni engin einkenni um berkla. Um er að ræða tvo starfsmenn Heilsugæslunnar Miðbæ. Skjólstæðingar stöðvarinnar hafi ekki verið útsettir fyrir smiti í samskiptum við starfsmennina. Ákveðið hafi verið í öryggisskyni að skima framlínustarfsfólk HH í kjölfar þess að berklasmit greindust hjá starfsfólki bráðamóttöku Landspítalans. Skimanir fóru fyrst fram á þeim starfsstöðvum þar sem talið var líklegt að starfsfólk hafi verið í samskiptum við einstaklinga sem gætu verið smitaðir af berklum. Þá hafi komið í ljós að það hafi verið tveir starfsmenn Heilsugæslunnar Miðbæ. Smit þýði að bakterían greindist í blóði starfsmannanna. Segir í tilkynningunni að þeir séu ekki með nein einkenni og eru ekki smitandi. Starfsmennirnir tveir fara nú í frekari rannsóknir og í kjölfarið í viðtal og mögulega meðferð hjá smitsjúkdómalækni. Fram kemur í tilkynningunni að berklar smitist við langvarandi eða náin samskipti við einstakling sem er með virka og smitandi berkla í lungum. Berklar smitist ekki við snertingu, af yfirborðum eða með því að nota áhöld eða fatnað sem smitaður einstaklingur hefur notað. Öllu framlínustarfsfólki boðin skimun „Vinna við skimun framlínustarfsfólks HH mun halda áfram af fullum þunga. Þar verður áfram forgangsraðað þannig að starfsfólk sem metið er í meiri áhættu verði skimað sem fyrst en markmiðið er að bjóða öllu framlínustarfsfólki sem vill upp á berklapróf. Mikilvægt er að halda til haga að þó berklabakterían greinist í blóðsýni þýðir það ekki að viðkomandi sé með berkla,“ segir í tilkynningunni. Þegar einstaklingur er útsettur fyrir smiti eru miklar líkur á að ónæmiskerfi líkamans vinni á bakteríunni. Ef það gerist ekki getur bakterían verið til staðar í líkamanum lengi án þess að hafa nokkur áhrif og án þess að viðkomandi geti smitað aðra. Ef bakterían er til staðar og ónæmiskerfi einstaklingsins veikist af einhverjum orsökum getur bakterían valdið virkum og smitandi berklum í lungum. Meðferð einstaklinga með smit sé tvennskonar. Einstaklingur sem er með bakteríuna í blóði en ekki virkt smit er meðhöndlaður með lyfjameðferð sem getur tekið allt að sex mánuði. Viðkomandi heldur almennt fullri heilsu á meðan meðferðin fer fram en hún er ekki án óþæginda. Einstaklingur sem er með virkt berklasmit er meðhöndlaður með lyfjameðferð í að minnsta kosti sex mánuði. Viðkomandi er almennt ekki smitandi eftir tveggja vikna meðferð. Frekari upplýsingar um berkla og berklasmit má finna á vef embættis landlæknis.
Heilbrigðismál Heilsugæsla Berklar Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira