Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 21. febrúar 2026 14:48 Aldey er oddviti í sveitarstjórn Norðurþings og móðir drengs í sjöunda bekk. Samsett/Vilhelm/Aðsend Hópur nemenda í sjöunda bekk kom sér saman og fékk í gegn að allir á þrettánda aldursári fengju að vera lengur en til átta í sundlauginni, líkt og reglur um útivistartíma segja til um. Nokkrum dögum síðar var opnunartími laugarinnar skertur. Móðir nemanda og oddviti í sveitarstjórninni segir soninn hafa verið afar ósáttan með skerðinguna.
Aldey Unnar Traustadóttir, er oddviti Vinstri grænna og óháðra í Norðurþingi og móðir Liljars sem er í sjöunda bekk. Málið sé allt heldur leiðinlegt. „Þetta byrjaði á að hann hringdi í mig mjög svekktur úr sundlauginni því þá var verið að meina honum aðgang,“ segir Aldey í samtali við fréttastofu. Ríkisútvarpið greindi fyrst frá en viðmið höfðu verið í gildi í sundlauginni á Húsavík sem sögðu að börn þyrftu að vera búin að eiga þrettán ára afmæli til að fá að vera í lauginni eftir klukkan átta. Aldey hvatti son sinn til að gera eitthvað í málinu og aðstoðaði hann við að útbúa erindi til að senda til sveitarstjórnarinnar. Nemendahópurinn, sem er mjög samheldinn að sögn Aldeyjar, hafði sjálfur fundið lög um útivistartíma barnanna sem sagði að reglurnar færu eftir aldursári, ekki afmælisdegi. „Hann fór með það í skólann og þeir sem vildu skrifuðu undir. Svo fóru þau með þetta inn í stjórnsýsluhús og var erindið tekið fyrir af fjölskylduráði. Þau vissu af þessu og það var búið að tala við fólkið í sundlauginni, þetta reyndist vera misskilingur. Þetta var einhver gömul regla sem hefur verið í gildi síðan ég var krakki,“ segir Aldey. „Mér fannst þetta vel gert.“ Skertur opnunartími Nokkrum dögum eftir að krakkarnir fengu það í gegn að öll börn á þrettánda aldursári birti Norðurþing tilkynningu þess efnis að stytta ætti opnunartíma sundlauganna. Sundlaugin mun nú opna 45 mínútum seinna og loka 45 mínútum fyrr, eða klukkan korter yfir átta. „Út af tekjuskerðingum vegna lokunarinnar hjá PCC þurftum við að fara í niðurskurð. Frekar en að skera stórt niður á einum stað ákváðum við að skera niður lítið hér og þar. Það má deila um það hvað fólki finnst en þeta var ákvörðunin sem var tekin,“ segir Aldey. Aldey segir að tekin hafi verið upplýst ákvörðun, rýnt í nýtingartíma sundlaugarinnar og kom þar í ljós að fæstir gestir mættu snemma á morgnana og á kvöldin. „Þetta er mjög leiðinlegt og engan langaði til að taka þess ákvörðun.“ Vonandi tímabundið „Sonur minn var hundfúll út í mig,“ segir Aldey en tekur fram að eðlilega séu börnin svekkt. „Stundum þarf maður að taka leiðinlegar ákvarðanir í sveitarstjórn og það fylgir þessu en við erum alltaf opin fyrir því að endurskoða þetta. Ég vona að við getum endurskoðað þetta aftur í haust.“ Hún ítrekar að mögulega sé skerðing opnunartímans einungis tímabundin en sveitarfélagið þurfti að ráðast í niðurskurð eftir að stöðva þurfti rekstur hjá PCC á Bakka. 110 misstu vinnuna vegna þess. Vonandi sé hægt að endurskoða opnunartímana í nýrri fjárhagsáætlun í haust.
Norðurþing Sundlaugar og baðlón Börn og uppeldi Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira