Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2026 21:08 Fyrst um sinn við áhorf á myndband Hafþórs mætti ætla að Reynisfjara sé alveg horfin. Gríðarleg ölduhæð var við Reynisfjöru í morgun í stórstreymi og segir leiðsögumaður að útsýnispallur og gangvegur við fjöruna séu að mestu horfnir á braut. Þá er annað skiltið auk þess horfið á braut.
Hafþór Óðinsson leiðsögumaður birti í dag myndband á samfélagsmiðlum sem hann tók í fjörunni í morgun. Þar má sjá hvernig landrofið í fjörunni hefur haldið áfram. Greint var frá því fyrir um tveimur vikum að hin heimsfræga fjara væri gjörbreytt, sandurinn svo gott sem allur horfinn á braut og stuðlabergið komið út í sjó. Ekkert lát á breytingunum „Það var rosalegt að sjá fjöruna núna, gangvegurinn bara í rústi og malbik og grjót út um allt og greinilega orðið grjóthrun í fjallinu. Mér var sagt að þetta hefði allt gerst í morgun í veðrinu og svo er annað skiltið farið,“ segir Hafþór í samtali við Vísi. Hann birti myndböndin meðal annars á Instagram síðu sinni. Hann fer reglulega í Reynisfjöru, fór síðast fyrir um mánuði síðan og sá með eigin augum miklar breytingar frá því hann fór í desember en þá segir Hafþór að fjaran hafi enn verið í sinni upprunalegu mynd. Hafþór tók myndbönd á vettvangi og birti eitt í Baklandi ferðaþjónustunnar á Facebook og hefur myndbandið vakið mikla athygli. „Það er magnað að sjá hvað þetta hefur breyst mikið á svona stuttum tíma,“ segir Hafþór sem bætir því við að enn sé eitt skilti eftir í fjörunni með ráðleggingum til ferðamanna.
Reynisfjara Ferðaþjónusta Mýrdalshreppur Tengdar fréttir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka. 8. febrúar 2026 22:02 Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Sjá meira
„Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka. 8. febrúar 2026 22:02