Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF BL og Ragnheiður Tryggvadóttir 26. febrúar 2026 08:33 MGS6 jepplingur kemur inn á rafbílamarkaðinn með hvelli eftir að hafa staðið sig vel í "norska prófinu" svokallaða. Þegar fjölskyldan er á höttunum eftir hentugum rafbíl er MGS6 einn þeirra sem kemur til greina. Hann er sagður rúmgóður og vel búinn, fjórhjóladrifinn og með farangursrými sem jafnast á við flutningagám eða svo gott sem. Raundrægnitölur þessa bíls þykja líka með þeim flottari í rafbílaheiminum samkvæmt nýjustu prófum.
Ég skellti mér í bíltúr. Einn af þeim bestu þegar kemur að vetrardægni Uppgefin drægni MGS6 er 485 km, sem dugar langleiðina í flest þó alltaf verði að gera ráð fyrir afföllum. Afföllin hjá þessum bíl eru reyndar með því minnsta en hann er einn þeirra rafbíla sem stóð sig hvað best í vetrardrægniprófi NAF, norska bílasambandsins, sem framkvæmt var nú í janúar 2026. Í því prófi eru fjölmargir rafbílar keyrðir við strangheiðarlegar vetraraðstæður í Noregi, í allt að -30 gráðu frosti, þar til hlaða þarf aftur og drægnin borin saman við uppgefnar WLTP tölur. Góður árangur í þessu prófi hljómar sérstaklega vel í eyrum okkar hér á Íslandi þar sem frost, snjór og vindhraði gera rafbílaeigendum lífið leitt og MGS6 vann sér inn nokkur prik fyrir þetta. MGS6 stóð sig einna best á norskum vegum í vetrardrægniprófi NAF. Tölurnar stóðust nánst upp á hár Það stóð þó ekki til að fara í mörghundruð kílómetra ferðalag þessa helgina en bíllinn skyldi reyndur í almennum snúningum innanbæjar og svo í góðan sunnudagsbíltúr, hversdagslíf par exelans. Hitastigið var í kringum 4 gráður þegar ég lagði af stað og ég ákvað að skella mér um Hvalfjörðinn, hef ekki keyrt hann síðan göngin voru opnuð. Bíllinn var rétt um 80% hlaðinn og gaf mér upp 320 km. Færðin var góð, auður vegur og þurr svo aðstæður voru góðar enda stóðst kílómetratalan nánast upp á punkt. Ég keyrði 150 km hring og talan á skjánum fór niður um 158 km. Gaman að stoppa við Botnsskála þó ekki fáist lengur pylsur. Þetta var hinn skemmtilegasti túr, Hvalfjörðurinn er vanmetinn sunnudagshringur þó ekki sé lengur hægt að stoppa í Botnsskála og fá sér pylsu. Ég stoppaði þar samt, upp á nostalgíuna. Brynjudalur er gullfallegur og eftir frostatíð undanfarna daga voru allir fossar og lækir í klakaböndum. MGS6 tók sig vel út við foss í klakaböndum. Vel hannað innra rými Inni í bílnum var notalegt, hiti í framsætum og í stýri og ég leið um sveitina í góðum gír. Sætin eru klædd mjúku leðurlíki og innanrýmið er í það heila vel hannað. 12,8“ stjórnskjár liggur á breiddina, sem mér finnst þægilegt fyrir augað og hann er með Apple Carplay, Android Auto GPS og þessu helsta. Skjárinn liggur þvert sem mér finnst gott fyrir augað. Ég gat valið milli fimm akstursstillinga, einsfetilsaksturs, stillt akstursaðstoðina til og kannski það sem hafði mest að segja, tekið hljóðmerkið vegna hraðatakmarkana af en þessi bíll skynjar öll hraðaskilti. Bíllinn er með 360 gráðu myndavél, fjarlægðarskynjara að aftan og framan, árekstrarvörn, brekkubremsu, blindhornsviðvörun og fleiri þægindum. Hægt er að velja um þrennskonar form á upplýsingum til að birta á sjónlínuskjánum til að hafa allt sem aðgengilegast. Tæknifælnum gæti þótt nóg um valmöguleikana á skjánum en eftir að hafa fiktað aðeins í þessu lá þetta allt frekar beint við. Það er líka hægt að vista stillingar og minnka þannig allt vesen. Skipt er um gíra með því að snúa stóra takkanum fyrir miðju. Þráðlaus símahleðsla er þar við hliðina. Hækka ég ekki í útvarpinu svona? Til að velja milli gíra þarf að snúa frekar stórum takka milli sætanna, sem ég þurfti aðeins að venjast. Og miðaldra ég skrúfaði reglulega upp í hitablæstrinum þegar ég ætlaði að hækka í útvarpinu. Annars eru ekki margir takkar í innréttingunni en flýtileiðir eru neðst á skjánum og í stýrinu. Innréttingin er því stílhrein og flott. Svo er stót geymsluhólf undir armpúðanum milli sæta og tveir bollahaldarar. Aftursætisfarþegarnir geta vippað miðjupúðanum í sætisbakinu fram og fengið þar tvo bollahaldara. Farþegarnir geta reyndar látið fara virkilega vel um sig aftur í því bíllinn er mjög rúmgóður og með mikið fótapláss. Hann er 4708 mm langur, heildarbreidd er 1912 mm og hæðin 1664 mm, veghæðin er 190 mm og því ætti hann að plumma sig vel á fjallvegum í snjó enda fjórhjóladrifinn. Það væri mjög gaman að prófa hann í frosti og snjó og láta reyna á vetrardrægni niðurstöðurnar. Bíllinn er 4708 mm langur og rúmgóður eftir því. Farangursrýmið tekur nánast endalaust við, 674 lítrar og ef aftursætin eru felld niður fáum við 1910 lítra. Ég gæti keypt heila eldhúsinnréttingu í Ikea og trillað henni heim í bílnum. Þá á eftir að nefna geymslurýmið í framskottinu, 102 lítrar, smellpassar fyrir innkaupapokana. Það er hægt að hlaða þokkalega í farangurshólfið. Mjúkur fjölskyldubangsi Mýktin og þægindin í þessum bíl stóðu upp úr. Það sem mér finnst helst einkennandi fyrir þennan bíl eftir helgaraksturinn er mýktin. Hann var svo mjúkur í beygjum í bæjarsnattinu, mjúkur í hringtorgum og mjúkur yfir hraðahindranir og einfetils stillingin virkaði ótrúlega vel í umferðaröngþveiti Skeifunnar. Ég þurfti ekkert að stíga á bremsuna og komst á mýktinni þar í gegn. Mér fannst sætin þægileg og svakalega gott að geta stillt stuðninginn við mjóbakið, miðaldra ökumenn þekkja tilfinninguna. Mér fannst líka stemmningin inni í bílnum mjúk, get ekki orðað það öðruvísi, hljóðvistin var góð og ég varð lítið vör við vega- og veðurhljóð. Efnisnotkunin og hönnunin öll ýtti undir þessa mjúku tilfinningu. Þetta er frábær ferðabíll og góður fjölskyldubíll, rúmgóður, pláss fyrir alla og fyrir farangurinn. Risastór loftglugginn gerir líka virkilega mikið fyrir farþegana og eins eru litlir horngluggar við hliðarspeglana sem mér fannst opna bílinn ótrúlega mikið. Samkeppnishæfur verðmiði Verðmiðinn er líka alveg yfirstíganlegur fyrir bíl af þessari stærð, 7.290.000 krónur eða 6.790.000 kr með rafbílastyrknum. Hér erum við því að tala um stóran, vel búinn raf-jeppling á vel samkeppnishæfu verði og sem hægt er að stóla nokkuð vel á þegar kemur að drægnitölunum á skjánum. Enginn trylltur sportbíll þannig lagað en að sjálfssögðu hægt að stilla á sport-akstursstillingu þegar stemmningin kallar á slíkt og þenja þessi 360 hestöfl. Hann stekkur líka frá 0 og upp í 100 á 5.1 sek ef okkur langar til þess. Fyrir fólk sem vill einfaldlega stresslaust rafbílalíf og þægilegan ferðamáta er MGS6 sannarlega á listanum yfir bíla til að prófa.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Verðbólga stendur í stað þvert á spár Viðskipti innlent Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Viðskipti innlent Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ Atvinnulíf Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Viðskipti innlent Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Viðskipti innlent Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Viðskipti innlent Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt Atvinnulíf Rússar farið með hundruð milljarða í gegnum bresk aflandssvæði Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira