Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Oddur Ævar Gunnarsson og Samúel Karl Ólason skrifa 24. febrúar 2026 17:18 Forsætisráðherra Íslands segir að þó stuðningur Íslands við Úkraínu nemi ekki háum upphæðum í stóru myndinni séu þær hlutfallslega háar og Íslendingar geti verið stoltir af stuðningi sínum við baráttu Úkraínumanna fyrir eigin fullveldi. Ráðherrann var í dag viðstödd minningarathafnir íKænugarði í tilefni af því að fjögur ár eru frá því að Rússar réðust inn í landið. „
Þetta er auðvitað einstök upplifun að vera hérna,“ segir Kristrún í samtali við fréttastofu. Hún segir það að sama skapi yfirþyrmandi að vera stödd þar sjálf í annað sinn og ömurlegt að vera á fjórða ári stríðsins. „Það er líka sérstök upplifun að átta sig á því að á þessu ári þá hafa Rússar náð að bæta við sig innan við eitt prósent af landsvæði en hafa misst um hálfa milljón manna og auðvitað líka mjög margir fallnir af hálfu Úkraínumanna. Þannig að það er auðvitað það sem er sorglegt og yfirþyrmandi við þetta, en Úkraínumenn eru að komast á betri stað og það er eftir því tekið.“ Klippa: Kristrún svarar spurningum í Kænugarði Verði að hlusta á óskir Úkraínumanna Fram hefur komið að Kristrún muni einnig funda með Volodómír Selenskí Úkraínuforseta ásamt leiðtogum hinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Kristrún segir Ísland í fyrra hafa stutt við Úkraínumenn þegar kemur að sprengjuleit og eyðingu þeirra. „Og við vorum líka að fara inn í þjálfunarverkefni á vegum NATO, eins sérstakar beiðnir af varnartengdum búnaði sem var að koma til NB8 landanna, það er að segja Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna, og við vitum að þetta virkaði og við þurfum að hlusta á Úkraínufólk. Og þess vegna erum við fyrst og fremst að einbeita okkur að þessum verkefnum líka aftur núna, bara það sem gekk í fyrra,“ segir Kristrún. „Og hefur skilað sér og skilað Úkraínumönnum í sterkari stöðu núna en þeir voru í fyrra. En síðan erum við líka að bæta við stuðningi á sviði orkumála vegna þess að þau hafa fundið hræðilega fyrir því að það er sérstaklega verið að gera árásir á orkuinnviði hérna.“ Hlutfallslega háar upphæðir Íslendingar hafa sem dæmi gefið milljarð til uppbyggingar á loftvörnum í Úkraínu. Í stríði líkt og þessu getur það þó dugað skammt en Úkraínumenn eyddu sem dæmi tólf milljörðum króna í loftvarnir einungis eina nótt í janúar. Selenskí hefur kallað eftir meiru, er það eitthvað sem kemur til greina af okkar hálfu? „Við erum auðvitað að vinna eftir þingsályktunartillögu á vegum Alþingis sem var samþykkt af öllum flokkum á síðasta kjörtímabili og erum með þær upphæðir sem að við erum að leggja til inn í þessa baráttu í takt við það. Við erum að gefa í kringum sex milljarða núna á þessu ári, sem er bara algjörlega í takt við samþykktir Alþingis, en það er að fara inn í vel valin verkefni sem skila sér og já, þetta eru kannski lágar upphæðir í stóru myndinni, en sem hlutfall er þetta hátt og við getum verið stolt af því að við séum að styðja við Úkraínumenn. Þeir taka eftir því og það munar um það.“
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Utanríkismál Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Miðflokki fatast flugið Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Innlent Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Erlent Fleiri fréttir Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Sendi Epstein sænsk kvenleiðtogaefni Nick Reiner segist saklaus af því að hafa myrt foreldra sína Áhrif stóraukins geimrusls á lofthjúpinn óþekkt Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Samþykktu Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs Sendiherra sem missti stöðuna vegna tengsla við Epstein handtekinn Hundruð milljarða í að verja strandir fyrir ágangi sjávar Yngsti forsætisráðherrann sór embættiseið Norðaustan stórhríð hrellir íbúa austurstrandar Bandaríkjanna Segir Trump ekkert botna í því hvers vegna Íranir gefa ekki eftir Hvað er vitað um manninn sem var skotinn við Mar-a Lago? Ófremdarástand eftir andlát voldugasta fíknaefnabaróns heims Rödd þolendanna að drukkna í spillingarmálum og samsæriskenningum Maður skotinn til bana við Mar-a-Lago Pakistanar gerðu loftárásir í Afganistan Segist ætla senda spítalaskip til Grænlands Íranir mótmæla á ný Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Stuðningur við norsku konungsfjölskylduna í frjálsu falli Rússneskir tölvuþrjótar réðust á grænlenskar heimasíður Til skoðunar að taka Andrew úr erfðaröðinni Svaraði tolladóminum með því að leggja toll Íranski byltingarvörðurinn kominn á hryðjuverkalista ESB og á Íslandi Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Sjá meira