Verðbólguálagið á markaði rýkur upp eftir enn eina „svarta“ verðbólgumælingu
Verðbólguvæntingar skuldabréfafjárfesta til skamms tíma hafa versnað verulega eftir nýja mælingu á vísitölu neysluverðs í morgun sem sýndi, þriðja mánuðinn í röð, talsvert meiri hækkun milli mánaða en svartsýnustu spár greinenda höfðu gert ráð fyrir.
Tengdar fréttir
Áform um að vaxa út úr vandanum sögð bjartsýn eða í „versta falli hrein tálsýn“
Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.