Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Rakel Sveinsdóttir skrifar 27. febrúar 2026 07:02 Við þekkjum öll lyndistáknin en kynslóðir geta upplifað þýðingu þeirra ólíkt. Eldra fólki getur fundist það einum of persónulegt að fá hjarta frá ókunnugum á meðan yngra fólki finnst óþarflega kuldalegt að fá þumalinn. Vísir/Getty Þegar það starfa saman nokkrar kynslóðir á sama vinnustað er eðlilegt að stundum ranghvolfi eldri starfsmenn augum yfir þeim yngri og öfugt, eða að þeim yngri finnist eitthvað fyndið, hallærislegt, leiðinlegt eða gamaldags sem eldri starfsmenn gera á meðan eldri starfsmönnum finnst sumt ungt fólk heldur kærulaust, ekki skilja alvöru málsins, ekki nógu vandvirkt eða samviskusamt og svo framvegis.
Allt vel meint en einfaldlega speglun á því að allar kynslóðir eru ólíkar og það að nú séu fjórar kynslóðir að vinna á sömu vinnustöðum þýðir einfaldlega að sumt starfsfólk ólst upp við ritvélar og fastlínusíma á meðan starfsfólkið sem situr við hlið þeirra ólst upp í heimi snjallsíma, spjallforrita og samfélagsmiðla. Það gefur augaleið að samskiptastíll, vinnumenning og túlkun á hversdagslegum hlutum getur verið ólík – og stundum valdið misskilningi. Eitt saklaust dæmi eru samskiptin sjálf. Eldri starfsmenn kjósa gjarnan símtöl, fundi eða ítarlegan tölvupóst. Yngri kynslóðir leysa sama mál með tveimur línum á Teams eða Slack. Það sem annar upplifir sem skilvirkni getur hinn túlkað sem kulda – eða öfugt; sem óþarfa langloku. Meira að segja lyndistáknin (e. emjois) geta verið túlkuð á mismunandi vegu. Þar sem eldra fólk gefur þumal upp sem ,,ókei" eða samþykki, án þess að átta sig á því að unga fólkinu getur þótt þumallinn óþarflega kuldalegur. Í umfjöllun AP News um fjölkynslóðavinnustaði kemur fram að starfsfólk úr ólíkum kynslóðum upplifi stundum að það tali bókstaflega „mismunandi tungumál“. Slangur, netmenning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli hópa, ekki vegna illvilja heldur einfaldlega vegna ólíks bakgrunns. Sífellt fleiri fyrirtæki eru þó farin að bregðast við. Ein leið sem hefur reynst vel er svokallað „reverse mentoring“. Þar snýst hefðbundin handleiðsla við: yngri starfsmenn leiðbeina þeim eldri í stafrænum straumum, samfélagsmiðlum, nýrri tækni og breyttri neytendahegðun á meðan eldri miðla til baka reynslu, tengslamyndun og faglegri dýpt. Snyrtivörurisinn Estée Lauder hefur til dæmis innleitt slíkt kerfi þar sem yngra starfsfólk er parað með stjórnendum og reynslumeiri starfsmönnum. Markmiðið er að gefa eldri kynslóðum innsýn í hvernig yngra fólk hugsar, verslar og hefur samskipti — til dæmis á TikTok, Instagram og öðrum stafrænum vettvangi sem skipta vörumerki sífellt meira máli. Á móti fá yngri starfsmenn aðgang að leiðsögn um leiðtogahæfni, viðskiptatengsl og langtímahugsun í rekstri. Niðurstaðan er sú að þegar kynslóðir fá rými til að kynnast og læra hver af annarri minnkar misskilningur hratt. Það sem áður var túlkað sem dónaskapur, leti eða úrelt vinnubrögð reynist oft einfaldlega vera ólíkur vani eða ólík nálgun. Með mentoring-leiðum skapast sameiginlegur skilningur: eldri átta sig betur á hraða og tækni nýrra tíma og yngri sjá skýrar virðið í reynslu, tengslaneti og faglegri dýpt. Fyrir vinnustaði þýðir þetta ekki bara betri líðan heldur líka betri ákvarðanir, sterkari teymi og meiri árangur til lengri tíma. Og nú styttist í að næsta kynslóð bætist í hópinn: Alfa-kynslóðin. Samkvæmt yfirliti frá gervigreind sundurliðast tímabil mismunandi kynslóða sem hér segir: Uppgangskynslóðin / „Baby Boomers“ (1946–1964)X-kynslóðin (1965–1980)Aldamótakynslóðin / Y-kynslóðin (1981–1996)Z-kynslóðin (1997–2012)Alfa-kynslóðin (2013–2025)
Vinnumarkaður Tengdar fréttir Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Það er svo dásamlegt að upplifa hvernig Z-kynslóðin er byrjuð að hafa þau breytingaráhrif sem búið er að spá fyrir um í nokkuð langan tíma. 30. janúar 2026 07:03 X-kynslóðin: Oft gleymd en ómissandi Það er svo mikið talað um Z-kynslóðina að aðrar kynslóðir falla eiginlega í skuggann. Ekki síst X-kynslóðin, sem þó er ein sú mikilvægasta á vinnumarkaði í dag: Fædd tímabilið 1965-1979 og á því heillangan tíma eftir á vinnumarkaði. 10. október 2025 07:02 Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Það eru alls konar kenningar um að hin svokallaða Z-kynslóð sé ekkert svo ofboðslega hrifin af því að fara inn á vinnumarkaðinn eða að vinna langa vinnudaga. 28. febrúar 2025 07:03 Góð ráð: Í atvinnuleit eftir fimmtugt Það getur verið nánast óhugnanleg tilhugsun að leita sér að nýju starfi eftir fimmtugt. Því eins og umræðan er, virðist allt benda til þess að eftir miðjan aldur geti atvinnuleit orðið sérstaklega krefjandi. 19. febrúar 2024 07:00 Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Það er svo mikið talað um hversu erfitt það er fyrir fólk eftir fimmtugt að fá vinnu, að eflaust þora sumir á þessum aldri ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda að segja upp í vinnunni sinni. Þótt fólk sé kannski orðið dauðþreytt á starfinu og dreymir alla daga um eitthvað annað. 26. september 2025 07:02 Mest lesið Paramount sigrar Netflix í baráttunni um Warner Bros. Viðskipti erlent Gugga fer í fyrirtækjarekstur Viðskipti innlent Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Atvinnulíf Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Viðskipti innlent „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Viðskipti innlent Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Viðskipti innlent Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Viðskipti innlent Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Viðskipti innlent Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Samfélagsmiðlar á vinnutíma: Hversu oft og hvers vegna Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Glæpamenn í fjarvinnu Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Þessir þrír drepa alla góða fundi „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Okkar eigin Zuckerberg: Doktorinn sem er með alla risana í viðskiptum Er þrælfyndin og skemmtileg þótt Viðskiptablaðið hafi sagt annað Breytingar í vinnunni: Hvað þýðir þetta fyrir mig? Innleiðing stefnu: „Keppikefli að gera sjálfan mig óþarfan“ Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Sjá meira
Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Það er svo dásamlegt að upplifa hvernig Z-kynslóðin er byrjuð að hafa þau breytingaráhrif sem búið er að spá fyrir um í nokkuð langan tíma. 30. janúar 2026 07:03
X-kynslóðin: Oft gleymd en ómissandi Það er svo mikið talað um Z-kynslóðina að aðrar kynslóðir falla eiginlega í skuggann. Ekki síst X-kynslóðin, sem þó er ein sú mikilvægasta á vinnumarkaði í dag: Fædd tímabilið 1965-1979 og á því heillangan tíma eftir á vinnumarkaði. 10. október 2025 07:02
Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Það eru alls konar kenningar um að hin svokallaða Z-kynslóð sé ekkert svo ofboðslega hrifin af því að fara inn á vinnumarkaðinn eða að vinna langa vinnudaga. 28. febrúar 2025 07:03
Góð ráð: Í atvinnuleit eftir fimmtugt Það getur verið nánast óhugnanleg tilhugsun að leita sér að nýju starfi eftir fimmtugt. Því eins og umræðan er, virðist allt benda til þess að eftir miðjan aldur geti atvinnuleit orðið sérstaklega krefjandi. 19. febrúar 2024 07:00
Ekki of seint að breyta starfsframa eða vinnu eftir fimmtugt Það er svo mikið talað um hversu erfitt það er fyrir fólk eftir fimmtugt að fá vinnu, að eflaust þora sumir á þessum aldri ekki einu sinni að hugsa þá hugsun til enda að segja upp í vinnunni sinni. Þótt fólk sé kannski orðið dauðþreytt á starfinu og dreymir alla daga um eitthvað annað. 26. september 2025 07:02