Reykjavíkurborg játar ranga upplýsingagjöf en umboðsmaður segir spurningum enn ósvarað Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. febrúar 2026 11:53 Er fundargerðum reglulega breytt? Það er ein af þeim spurningum sem umboðsmaður telur enn ósvarað. Vísir/Vilhelm Fulltrúar Reykjavíkurborgar hafa viðurkennt að hafa veitt Umboðsmanni Alþingis rangar upplýsingar um afgreiðslu umsagnar er varðaði vörugeymsluna við Álfabakka.
Vísir greindi frá því í september síðastliðnum að lögmaður Reykjavíkurborgar hefði svarað fyrirspurn umboðsmanns og sagt að mannleg mistök hefðu leitt til þess að fundargerð var tekin út af vef borgarinnar og síðan endurbirt, með breyttir umsögn skipulagsfulltrúa um vöruskemmuna. Umboðsmaður óskaði frekari skýringa á málinu og bárust þau svör 22. október að honum hefðu verið veittar rangar upplýsingar. Þannig sagði í upphaflegum svörum Reykjavíkurborgar að sú umsögn sem birtist með fundargerðinni hefði verið sú sem sannarlega var samþykkt áumræddum fundi. Nú hefur borgin hins vegar viðurkennt að umsögninni hafi verið breytt eftir samþykkt á afgreiðslufundinum og bætt við hana umfram það sem heimilt er. Efnisleg niðurstaða hafi hins vegar verið sú sama. Vegna þessa var umsögnin tekin aftur til afgreiðslu 28. október og samþykkt. Alvanalegt að fundargerðum sé breytt? Umboðsmaður telur hins vegar spurningum enn ósvarað og segir gögn Reykjavíkurborgar meðal annars benda til þess að umsögninni hafi verið breytt enn frekar, eftir að hún var upphaflega samþykkt í maí á síðasta ári. Þannig virðist sem upphaflegar breytingar, sem Reykjavíkurborg hefur viðurkennt að hafi verið ólögmætar, hafi átt sér stað 16. maí en gögnin bendi til þess að umsögninni hafi enn og aftur verið breytt eftir þann dag. Þá bendir umboðsmaður á að eftir að afgreiðslufundurinn fór fram, þar sem umsögnin á að hafa verið samþykkt, hafi starfsmenn enn verið að tala um „fyrstu drög“ umsagnarinnar í samskiptum sín á milli. Umboðsmaður óskar einnig skýringa á fullyrðingum starfsmanns Reykjavíkurborgar í gögnum sem tengjast öðru kvörtunarmáli að það sé alvanalegt að fundargerðum skipulagsfulltrúa væri breytt með því að afmá umfjallanir úr fundargerðum. „Þess er óskað að Reykjavíkurborg lýsi afstöðu sinni til þess sem fram kom í fundargerð ofangreinds fundar og hvernig það samrymist upplýsingum sveitarfélagsins til umboðsmanns um að almennt tíðkist ekki að fundargerðum sé breytt.“ Umboðsmaður óskar svara eigi síðar en 9. mars.
Umboðsmaður Alþingis Vöruskemma við Álfabakka Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira