Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. febrúar 2026 18:53 Logi Sigurðsson lék frábærlega í dag og er í níunda sæti eftir fyrsta hring. Getty/Oisin Keniry Íslenski kylfingurinn Logi Sigurðsson átti frábæran dag á Infinitum Championship-mótinu á Nordic Golf League-mótaröðinni í Tarragona á Spáni.
Logi Sigurðsson lék á sex höggum undir pari á fyrsta hring mótsins. Hann fékk einn örn, fjóra fugla og þrettán pör á hringnum og er einu höggi á eftir átta kylfingum sem deila forystunni, þeirra á meðal er Edoardo Molinari sem hefur þrisvar sigrað á Evrópumótaröðinni. Golfsamband Íslands segir frá þessari frábæru spilamennsku á miðlum sínum. Högg dagsins hjá Loga kom strax á annarri holu er hann sló beint ofan í holu af 76 metra færi og fékk glæsilegan örn. Dagbjartur Sigurbrandsson lék á fjórum höggum undir pari í dag og hann var ásamt fjórum öðrum kylfingum á besta skori dagsins á Hills/Ruins vellinum. Nítján bestu skorin komu öll á Lakes vellinum í dag. Hlynur Bergsson var á tveimur höggum undir pari, Aron Snær Júlíusson á einu höggi yfir pari, Svanberg Addi Stefánsson á fjórum höggum yfir pari, Daníel Ísak á fimm höggum yfir pari og Ólafur Marel Árnason á sex höggum yfir pari. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf)
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira