Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 1. mars 2026 13:06 Ellý Tómasdóttir, verkefnastjóri frístundaþjónustu hjá Árborg, ásamt því að vera forvarnarfulltrúi sveitarfélagsins. Magnús Hlynur Hreiðarsson Hinsegin vika hefst í Sveitarfélaginu Árborg á morgun, mánudaginn 2. mars og stendur til laugardagsins 7. mars. Með vikunni vill sveitarfélagið leggja áherslu á mikilvægi mannréttinda, virðingar og jafnréttis, auk þess að skapa vettvang þar sem fjölbreyttar raddir og lífsskoðanir fá að heyrast og njóta virðingar.
Þetta er fimmta árið í röð, sem hinsegin vika er haldin í Árborg en hún verður formlega sett af bæjarstjóra Árborgar í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi annað kvöld. Síðan tekur við fjölbreytt dagskrá alla vikuna. Ellý Tómasdóttir er verkefnastjóri frístundaþjónustu hjá Árborg, ásamt því að vera forvarnarfulltrúi. „Í þessari viku viljum við bara leggja áherslu á að fagna fjölbreytileikanum, vera með fræðslu um hinsegin málefni, sýnileika og fá samfélagið svolítið með okkur í lið að efla sýnileikann,” segir Ellý. Hversu mikilvægt er að halda svona viku að þínu mati? „Það er mjög mikilvægt, mjög mikilvægt því þetta eflir líka samfélagið okkar og fyrir þá einstaklinga, sem tengja mikið við hinseginleikann, það er svo mikilvægt að finna að þau sjái að við öll stöndum með þeim og séum til staðar”. Hinsegin vika hefst í Sveitarfélaginu Árborg á morgun, mánudaginn 2. mars og stendur til laugardagsins 7. mars.Magnús Hlynur Hreiðarsson En hvað með hinn almenna bæjarbúa, hvernig taka íbúar hinsegin viku? „Mér finnst þeir bara taka þessu ótrúlega vel og það eru mjög margir að taka þátt með okkur enda hvetjum við íbúa til að taka þátt með okkur en líka stofnanir og fyrirtæki og annað í sveitarfélaginu og það er gaman að sjá núna að miðbærinn er að koma mjög sterkur inn. Og mjólkurbúið verður upplýst með alls konar marglituðum ljósum og svona. Það verður líka boðið upp á hinsegin hamborgara í miðbænum, dragsjóv og hinsegin karoke svo eitthvað sé nefnt,” segir Ellý. Hér má sjá dagskrá vikunar
Árborg Hinsegin Mest lesið Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Fleiri fréttir Samskiptum á einkamál.is lauk með 108 milljóna tapi Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Sjá meira