Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Berghildur Erla Bernharðsdóttir og Lovísa Arnardóttir skrifa 2. mars 2026 12:00 Ferðalagið átti aðeins að byrja í Dubaí en stelpurnar hafa ílengst þar vegna stríðsins í Íran. Aðsend Fjórar ungar íslenskar konur sem voru í safarí við Dubai á laugardagsmorgun fréttu frá foreldrum sínum hér heima að drunur sem þær heyrðu væri skotárás að sögn móður einnar þeirra. Þær hafa verið fastar á hóteli síðan þá en vonast er til að þær komist frá borginni á miðvikudag.
Eins og fram hefur komið svöruðu Íranar og bandamenn þeirra árásum á landið með eldflauga- og drónaárásum á nágrannaríki Íran í Mið-Austurlöndum og herstöðvar Bandaríkjanna, þar á meðal í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Rétt að hefja heimsreisu Þær Sigrún Heba Þorkelsdóttir, Sara Björk Þórðardóttir, Hafdís Anna Hauksdóttir og Magnea Steinunn H. Magnadóttir eru um tvítugt og hófu langþráða heimsreisu í borginni Dubai á föstudaginn og voru í skipulagðri ferð á laugardagsmorgun þegar þær heyrðu drunur í kringum sig. Stelpurnar hafa verið í sambandi við aðra Íslendinga og Breta í Dúbaí sem hafa aðstoðað þær. Aðsend Magnea Steinunn segir þær vinkonur að mestu halda sig innan hótelsins. „Við erum staddar i Dúbaí sem er fyrsta stoppið okkar i 2,5 mánaða reisu um Asíu. Eins og staðan er núna er lofthelgi UAE lokuð svo við erum fastar i borginni,“ segir Magnea í skriflegu svari því þær þurfa að nota 4G Internetið sem þær eru með til að hringja í fjölskyldu. Magnea segir foreldra sína strax hafa haft samband við borgaraþjónustuna á laugardag og í kjölfarið hafi þær haft samband við danska og norska sendiráðið þar í landi til að láta vita af sér. „Við áttum að fara á næsta áfangastað á sunnudagskvöldið og átti hópferðin að hefjast í dag en við erum enn fastar hér og líklega erum við búnar að missa af þeirri ferð eins og staðan er núna,“ segir Magnea. Ferðin er skipulögð af ferðaskrifstofunni Kilroy og segir Magnea starfsfólk hafa ráðlagt þeim að framlengja gistinguna á hótelinu fram á miðvikudag, og að þær ættu að halda sig innandyra. „Kilroy hafði svo samband við okkur í gærkvöldi og vonandi fara hlutirnir að skýrast betur. Það vita allir frekar lítið og það er ekki mikið hægt að gera nema bíða uppi á hóteli og bíða eftir frekari upplýsingum. Við erum fastar hér um óákveðinn tíma, ungar, hræddar og erfitt að taka á vandamálum sem maður hafði aldrei ímyndað sér að maður myndi lenda í. Mesta panik-ástandið var á laugardagsnóttina þar sem kom viðvörun i símana og lýst yfir neyðarástandi. Við vissum ekkert og földum okkur inni á baði,“ segir Magnea. Stelpurnar eru í Dubaí og vita ekki hvenær þær komast þaðan. Aðsend Hún segir að þó svo að ástandið sé erfitt sé ekki vesen að fá mat. „Það eru matarsendlar starfandi hér á fullu svo við getum fengið mat sendan á hótelið. En það er kostnaðarsamt að vera í þessari borg og þetta var ekki peningur sem við vorum búnar að áætla að eyða. Símanúmerin okkar virka ekki og það eina sem við treystum á eru símtöl í gegnum net. Það er búið að virka vel en við erum bara með net á hótelinu eins og staðan er núna. Við erum í miklu sambandi við fjölskyldu og höfum komið okkur í samband við Íslendinga og Breta hérna úti sem hafa hjálpað okkur. Við fáum allar upplýsingar frá foreldrum okkar um stöðu mála og þau reyna að vinna í þessu eins mikið og þau geta heiman frá,“ segir Magnea. Á öruggara hóteli Rætt var við Dröfn Guðjónsdóttur, móður einnar þeirra, í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. „Á laugardagsmorgun fóru þær í safarí í eyðimörkinni. Þar heyra þær drunur yfir sér. Við höfum samband við þær vegna fréttanna af árásunum þannig að við látum þær í raun vita hvað er að gerast. Þær kláruðu þó ferðina og fóru upp á hótel þar sem þær hafa verið síðan. Við höfðum strax samband við borgaraþjónustuna til að reyna að koma þeim heim en flugvellir lokuðu eftir sprengjuárásina,“ segir Dröfn. Þær fóru nú rétt fyrir hádegi á annað hótel sem er stærra og öruggara að sögn Drafnar. Vonast sé til að þær komist frá borginni á miðvikudag. Magnea Steinunn H. Magnadóttir, Sara Björk Þórðardóttir, Sigrún Heba Þorkelsdóttir, Hafdís Anna Hauksdóttir.Vísir Bera sig vel „Eftir því sem við best vitum verður flugvöllurinn opnaður á miðvikudag og þær komast vonandi frá borginni þá. Borgaraþjónustan hefur upplýst okkur um að þetta skýrist síðar í dag,“ segir hún. Hún segir að stelpurnar beri sig vel miðað við aðstæður. „Það eru náttúrulega alls kyns tilfinningar sem vakna í svona aðstæðum og þeim finnst óþægilegt að vakna við sprengjudrunur sem hafa verið í gangi annað slagið. Það getur verið erfitt að sofa við svona aðstæður. Það á bæði við um þær og okkur,“ segir Dröfn.
Íran Íslendingar erlendis Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fleiri fréttir Geðrofslyf leysa hefbundin svefnlyf af hólmi Logandi pottur Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Sjá meira