Best að geta elt draumana saman Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 3. mars 2026 07:00 Dagbjört Bjarnadóttir og Hákon Valdimarsson búa í London. Aðsend „Það var mjög fyndið þegar ég fór á fyrsta útileikinn minn hjá Brentford á Tottenham-vellinum og settist óvart í vitlaust sæti, hjá Tottenham-stuðningsmönnum. Þegar ég áttaði mig á því og lét þá vita vorum við komin í svo mikinn gír saman að þeir neituðu að hleypa mér í mitt rétta sæti,“ segir lögfræði-meistaraneminn og lífskúnstnerinn Dagbjört Bjarnadóttir. Hún býr í London með kærastanum sínum, fótboltamanninum Hákoni Valdimarssyni.
Hákon spilar með Brentford og Dagbjört sinnir masternum í lögfræði í fjarnámi en hjúin eru dugleg að ferðast og upplifa skemmtilega hluti. Dagbjört ræddi við blaðamann um lífið úti. Hákon og Dagbjört elska lífið í London.Aðsend Hvað varð til þess að þú fluttir til London? Ég flutti með kærasta mínum, en hann er að spila fótbolta hér í London. View this post on Instagram A post shared by Dagbjört Bjarnadóttir (@dagbjortbjarnad) Hvað hefurðu búið þar lengi? Við fluttum í janúar 2024 eða fyrir rétt rúmlega tveimur árum síðan. Dagbjört flutti til London fyrir rúmum tveimur árum en er bæði dugleg að ferðast og koma heim til Íslands.Aðsend Hvað ertu að gera þar? Ég er í fullu námi í meistaranámi í lögfræði og í fjarvinnu frá Íslandi. View this post on Instagram A post shared by Dagbjört Bjarnadóttir (@dagbjortbjarnad) Hefurðu búið annars staðar erlendis? Já ég bjó í Danmörku og Bretlandi fyrstu fimm árin. Ég flutti síðan aftur til Danmerkur fyrsta árið í menntaskóla og er síðan mætt núna aftur til Bretlands. Dagbjört hefur tvisvar sinnum búið bæði í Danmörku og Bretlandi.Aðsend Hvernig hefur daglegt líf verið hjá þér í stórborginni? Í rauninni er enginn dagur eins hjá mér. Ég er auðvitað að klára masterinn í lögfræðinni, ásamt því að vera í fjarvinnu. Dagarnir litast svolítið af því, en svo erum við mjög dugleg að ferðast um Evrópu þegar hann fær frí. Ég reyni svolítið að skipuleggja mig þannig að ég sé að vinna og læra þegar hann er að spila og á æfingum og svo njótum við saman þegar tími gefst. Enginn dagur er eins í lífi Dagbjartar en hún sinnir bæði fullu námi og fjarvinnu frá Íslandi. Þau hjúin eru dugleg að ferðast þegar færi gefst.Aðsend Hvaða hverfi er í uppáhaldi og afhverju? Richmond er í miklu uppáhaldi. Við búum í Brentford sem er rétt hjá Richmond og er æðislegt hverfi þar sem Thames áin rennur í gegn. Hverfið er umvafið skemmtilegum götum, veitingastöðum og töluvert minna busy en Central London. Richmond er uppáhalds hverfi Dagbjartar.Aðsend Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti? Bagatelle er í miklu uppáhaldi, en það er franskur staður sem er á Dover street í Mayfair. Síðan elskum við Feather and Heart kaffihúsið í Brentford, en þangað förum við oft í brunch. View this post on Instagram A post shared by Dagbjört Bjarnadóttir (@dagbjortbjarnad) Hvað er skemmtilegast við lífið úti? Það er svo margt í boði hérna í London og mikið að sjá og gera. Síðan finnst mér alltaf mjög gaman að fara á fótboltaleikina og upplifa stemninguna á mismunandi völlum. Það er margt skemmtilegt að upplifa og njóta í London. Aðsend Hefurðu fundið fyrir heimþrá ? Ekki beint heimþrá kannski, en auðvitað sakna ég vina og fjölskyldu, þá kannski sérstaklega mömmu en við erum mjög nánar. Ég hef verið dugleg að kíkja í heimsókn til Íslands en það er einn af kostunum við London, þá hvað það er stutt að skjótast heim. Dagbjört finnur ekki mikið fyrir heimþrá en saknar þó mömmu sinnar og er dugleg að skreppa heim til hennar. Lífið í stórborginni á vel við hana.Aðsend Hvað er framundan? Við tökum svolítið einn dag í einu hérna úti. Dagskráin býður kannski ekki upp á annað en að plana hluti með litlum fyrirvara. Við erum þó ákveðin í því að halda áfram að ferðast eins mikið og hægt er, sem og halda áfram að njóta hér í London. Þetta glæsipar er duglegt að upplifa alls konar skemmtilegt samhliða því að vinna hörðum höndum að sínu.Aðsend Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti? Kannski hvað Bretinn er ólíkur okkur Íslendingum að mörgu leyti. Hvað er það steiktasta eða fyndnasta sem þú hefur lent í úti? Það var mjög fyndið þegar ég fór á fyrsta útileikinn minn hjá Brentford hér í London, á Tottenham-vellinum, og settist óvart í vitlaust sæti hjá Tottenham-stuðningsmönnum. Þegar ég áttaði mig á því og lét þá vita vorum við komin í svo mikinn gír saman að þeir neituðu að hleypa mér í mitt rétta sæti. Ég endaði því á að sitja hjá þeim allan leikinn og þetta er enn þann dag í dag einhver lang skemmtilegasti leikur sem ég hef farið á. Dagbjört er dugleg að mæta á leiki og styðja sinn mann. Hún á margar skemmtilegar sögur af leikjunum, þá sérstaklega þegar hún sat óvart með stuðningsmönnum hins liðsins.Aðsend Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig? Miðað við stöðuna núna erum við ekkert á heimleið á næstunni. Ísland er samt alltaf loka áfangastaður, það fer ekkert á milli mála. View this post on Instagram A post shared by Dagbjört Bjarnadóttir (@dagbjortbjarnad) Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til? Ég myndi segja að það besta sé að við getum bæði elt drauma okkar saman, búið saman í stórborg og fengið að ferðast um heiminn þess á milli.
Íslendingar erlendis Bretland Fótbolti Mest lesið Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Sjá meira