Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Jakob Bjarnar skrifar 3. mars 2026 10:55 Davíð Oddsson hafði átt við vanheilsu að stríða en það var hins vegar hjartaáfall sem lagði hann í valinn. Þessi mynd er tekin á síðasta ríkisráðsfundi Davíðs 2005. vísir/vilhelm Davíð Oddsson ritstjóri, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sem lést að heimili sínu á sunnudaginn, 78 ára að aldri, mun hljóta opinbera útför. Banamein Davíðs var hjartaáfall.
Í samtali við forsætisráðuneytið kemur fram vilji af hálfu hins opinbera til að útför Davíðs verði opinber. Það þýðir að ríkið mun standa straum af öllum kostnaði við útförina og prótókol verður viðhaft í tengslum við sætisskipan þeirra sem vilja fylgja hinum látna til grafar en upplýsingafulltrúi ráðuneytisins tekur fram að allt þetta sé á byrjunarreit og það sé í raun fjölskyldan sem ræður för. Hið opinbera mun til að mynda ekki velja sálma við útförina, svo dæmi sé nefnt. Virðingarvottur af hálfu ríkisstjórnarinnar Þetta er því í raun virðingarvottur af hálfu ríkisstjórnarinnar. Í seinni tíð hafa opinberar útfarir ekki verið tíðar. Síðasta opinbera útförin var þegar Halldór Ásgrímsson fyrrverandi forsætisráðherra var borinn til grafar 2015. Þá var opinber útför þegar Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra var kvaddur árið 2010. Opinberar útfarir voru tíðari á árum áður en virtir listamenn á borð við Kjarval og Laxness voru meðal þeirra sem hlutu opinbera útför. Illugi Gunnarsson, Kjartan Gunnarsson og Davíð Oddsson spá í spilin á kosningahátíð Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík kosningakvöldið 10. maí. 2003vísir/vilhelm Þá var einnig athyglisvert í þessu samhengi að þegar Guðrún Katrín Þorbergsdóttir var borin til grafar 1998 var sú útför opinber. Þá mætti kóngafólk til landsins sem þýddi að gera þurfti ráð fyrir þeim sérstaklega í kirkjunni. Enn liggur til að mynda ekki fyrir hvort erlendir gestir eru væntanlegir til að kveðja Davíð hinstu kveðju. Hjartaáfallið kom aðstandendum á óvart Þegar opinberar útfarir voru gerðar var þeim einatt sjónvarpað eða útvarpað en nú, þegar önnur hver útför er í beinu streymi, er það er líklega til ekki sérstakt tiltökumál. Viðræður við fjölskylduna um hvernig útförinni verður háttað eru á byrjunarreit, til að mynda liggur ekki fyrir hvort Dómkirkjan verður umgjörð jarðarfararinnar – hún er hátíðlegri en til að mynda Hallgrímskirkja sem rúmar talsvert fleiri. Davíð Oddsson hafði átt við vanheilsu að stríða að undanförnu en vonir voru bundnar við að hann væri að ná sér. Það kom því fjölskyldu og samstarfsfólki í opna skjöldu þegar hjartað gaf sig. Í gær tók Vísir til margvíslegar kveðjur og minningarbrot sem fólk af öllum samfélagsstigum birti á samfélagsmiðlum. Saman teikna upp mynd af manni sem var stór í sniðum og skipti þjóð sína miklu máli. Vandséð er að þar finnist annar jafn í bráð. Enn er að bætast í þann sarp.
Andlát Stjórnsýsla Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Fjölmiðlar Andlát Davíðs Oddssonar Tengdar fréttir Davíð Oddsson er látinn Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri. 2. mars 2026 06:06 Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Davíð Oddsson er látinn Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri. 2. mars 2026 06:06