Fleiri gætu kallað eftir því að fá Hringveginn Kristján Már Unnarsson skrifar 11. mars 2026 11:10 Vígsla Skeiðarárbrúar árið 1974 markaði opnun hringvegarins. Brúin var aflögð árið 2017 eftir að Skeiðará hóf að renna í Gígjukvísl. Ný minni brú var þá lögð yfir Morsá ásamt nýjum vegarkafla, sem sést til vinstri. Stöð 2/Arnar Halldórsson Starfshópur sem Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra skipaði leggur til að Vestfjarðahringurinn verði skilgreindur sem hluti af Hringveginum, það er þjóðvegi númer eitt. Fordæmi er þegar komið frá Austurlandi.
Starfshópurinn var skipaður fulltrúum frá innviðaráðuneyti, Vegagerð og Fjórðungssambandi Vestfirðinga. Meginrök hans fyrir breyttum Hringvegi er að hann muni jafna stöðu Vestfjarða gagnvart öðrum landshlutum og styrkja byggðir á svæðinu en fjallað var um tillöguna í kvöldfréttum Sýnar: Hringvegurinn opnaðist upphaflega árið 1974 þegar fljótin á Skeiðarársandi voru brúuð. Hann var þá rétt rúmlega 1400 kílómetra langur. Fordæmi er fyrir því að breyta Hringveginum en það gerðist í ráðherratíð Jóns Gunnarssonar fyrir níu árum. Þjóðvegur númer eitt lá áður um Breiðdalsheiði en var að ósk Fjarðabyggðar færður þannig að hann lægi um byggðir sveitarfélagsins. Stöð 2 fjallaði um breytinguna í þessari frétt árið 2017: Og núna vilja Vestfirðingar nýta sér fordæmið frá Austurlandi og að þjóðvegur 1 liggi um Vestfirði. Það er talið geta stuðlað að auknum ferðamannastraumi en einnig skapa þrýsting á meiri vegabætur. En þá er það spurningin: Ef Vestfirðingar fá þetta í gegn, vilja þá ekki fleiri landshlutar fá Hringveginn til sín? Innviðaráðherra með starfshópnum. Frá vinstri: Valgerður Gréta Benediktsdóttir, innviðaráðuneyti, Hólmfríður Sveinsdóttir, innviðaráðuneyti, Eyjólfur Ármannsson, Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, tilnefnd af Fjórðungssambandi Vestfirðinga, og Valtýr Þórisson formaður, tilnefndur af Vegagerðinni. Á myndina vantar Jón Árnason frá Fjórðungssambandi Vestfirðinga.Innviðaráðuneytið Byggðarök Vestfirðinga gætu einnig átt við um Norðausturland. Þar eru byggðir eins og Kópasker, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafjörður og Vopnafjörður. Því má ætla að þess verði ekki langt að bíða að norðausturhornið krefjist þess að Hringvegurinn verður víkkaður þangað. Og hvað með sveitarstjórnarmenn í Fjallabyggð? Myndu þeir ekki einnig vilja teygja Hringveginn um Tröllaskaga þannig að hann lægi um Siglufjörð og Ólafsfjörð? Svo kæmu örugglega Skagfirðingar og Húnvetningar að biðja um að Hringvegurinn færi um Skaga og Vatnsnes. Og þegar bæjarstjórar á Snæfellsnesi sjá Hringveginn kominn um Vestfirði, þeir hljóta að vilja fá hann einnig umhverfis Snæfellsnes. Hér má sjá núverandi Hringveg ásamt fleiri dæmum um hugsanlega útvíkkun hans.grafík/hjalti freyr ragnarsson Kannski munu bæjarstjórar á Suðurnesjum einnig blanda sér í umræðuna. Er þá ekki rökrétt að Hringvegurinn liggi um Reykjanesskagann? Og hversvegna að binda sig við strandbyggðir? Gætu ekki Sunnlendingar séð sér hag í því að teygja Hringveginn í uppsveitir í stað að hann liggi stystu leið í gegnum Suðurland? Og Borgfirðingar látið hann þræða Borgarfjarðardali? Hér má sjá frétt frá 2019 þegar síðustu malarkaflar Hringvegarins hurfu: Það geti verið í uppsiglingu spennandi slagur um hvar Hringvegurinn eigi að liggja. Það virðast vera heilmiklir hagsmunir í því að vera við þjóðveg númer eitt.
Vegagerð Samgöngur Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum. 20. apríl 2025 10:10 Hringvegurinn lengist um tíu kílómetra í nótt Hringvegurinn lengist á miðnætti um tíu kílómetra en á sama tíma styttast malarkaflar hans um 24 kílómetra, allt vegna númerabreytingar á Austurlandi. 10. nóvember 2017 20:57 Þingmaður gagnrýnir breytingar á hringvegi Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, gagnrýndi á Alþingi í gær fyrirætlanir innanríkisráðherra um að breyta hringveginum á Austurlandi. 18. febrúar 2016 07:00 Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira
Vestfjarðaleiðin verði Hringvegur númer tvö Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp undir forystu Vegagerðarinnar til að kanna kosti þess og galla að skilgreina vegina sem mynda hringleið um Vestfirði sem hringveg sem fengi vegnúmerið 2. Þetta er í samræmi við tillögu nefndar forsætisráðherra um eflingu byggðar á Ströndum. 20. apríl 2025 10:10
Hringvegurinn lengist um tíu kílómetra í nótt Hringvegurinn lengist á miðnætti um tíu kílómetra en á sama tíma styttast malarkaflar hans um 24 kílómetra, allt vegna númerabreytingar á Austurlandi. 10. nóvember 2017 20:57
Þingmaður gagnrýnir breytingar á hringvegi Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, gagnrýndi á Alþingi í gær fyrirætlanir innanríkisráðherra um að breyta hringveginum á Austurlandi. 18. febrúar 2016 07:00