Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Atli Ísleifsson skrifar 13. mars 2026 13:45 Frá árinu 1985 hefur utanríkisráðuneytið haft á leigu landsvæði frá Bolungarvíkurkaupstað á Bolafjalli vegna reksturs ratsjárstöðvar. Vísir/Vilhelm Utanríkisráðuneytið, Bolungarvíkurkaupstaður og varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar hafa undirritað samkomulag um veghald á Bolafjalli og hefur ábyrgð á rekstri vegarins verið flutt frá utanríkisráðuneytinu til Bolungarvíkurkaupstaðar.
Frá árinu 1985 hefur utanríkisráðuneytið haft á leigu landsvæði frá Bolungarvíkurkaupstað á Bolafjalli vegna reksturs ratsjárstöðvar, en vegur upp að stöðinni var lagður í kjölfarið. Í tilkynningu á vef utanrríkisráðuneytisins segir að varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar fari með daglegan rekstur ratsjárstöðvarinnar og hafi auk þess sinnt viðhaldi vegarins í umboði utanríkisráðuneytisins. „Vegurinn hefur verið opinn almennri umferð á sumrin, en þannig hefur verið tryggt aðgengi að vinsælum útsýnispalli á toppi Bolafjalls, sem tekinn var í notkun 1. september 2022. Síðan þá hefur umferð um fjallið stóraukist yfir sumartímann með tilheyrandi aukningu á viðhaldskostnaði. Með samkomulaginu sem undirritað var í dag hefur Bolungarvíkurkaupstaður nú tekið yfir rekstur og viðhald vegarins í samráði við utanríkisráðuneytið og varnarmálasvið LHG og hyggst sveitarfélagið ráðast í framkvæmdir á veginum til að tryggja umferðaröryggi,“ segir í tilkynningu á vef ráðuneytisins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Jóni Páli Hreinssyni, bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar, og Jóni B. Guðnasyni framkvæmdastjóra varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands.Stjr Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að þetta sé samkomulag sem gagnist öllum hlutaðeigandi, þar sem nú geti Bolvíkingar byggt upp frekari ferðaþjónustu með því að fjárfesta í veginum til að gera hann enn aðgengilegri fyrir þær þúsundir ferðamanna sem heimsæki Bolafjall á hverju ári til að upplifa hið ólýsanlega útsýni sem við blasir uppi á fjallstindinum. „Á sama tíma er aðgengi starfsfólks að ratsjárstöðinni tryggt og samráð okkar við sveitarfélagið um opnun og lokun vegarins þegar svo ber undir fest í sessi,“ er haft eftir Þorgerði.
Bolungarvík Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ferðaþjónusta Landhelgisgæslan Öryggis- og varnarmál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira