„Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 14. mars 2026 16:00 Hjálmar skrifaði fréttir af brunanum á Funahöfða þar sem einn lést. Blaðamaður sem sýknaður var í Landsrétti af stefnu vegna fréttaflutnings af andláti sextugs Pólverja í bruna árið 2023 segir ótrúlegt að hafa verið dreginn fyrir dóm fyrir að hafa greint frá staðreyndum málsins vegna brunans. Málið sýni fram á hverjir beri í raun ábyrgð vegna málsins, það sé ekki fyrirtæki eða stofnanir heldur einstaklingar af holdi og blóði. „Það er í rauninni bara magnað að þeir vilji beina athyglinni að sinni skítlegu hegðun aftur og aftur með því að áfrýja þessu máli,“ segir Hjálmar Friðriksson blaðamaður í samtali við Vísi. Greint var frá því í gær að Hjálmar hefði verið sýknaður í tveimur dómsmálum vegna frétta sem hann skrifaði um eld sem kom upp í iðnaðarhúsnæði í Funahöfða í Reykjavík 16. október 2023. Einn lést í brunanum en fjöldi fólks bjó í húsinu, að megninu til erlent verkafólk. Sagði um nútímaþrælahald að ræða Fram kom í fréttum í kringum eldsvoðann að húsnæðið væri að mestu í eigu tveggja félaga í eigu þriggja manna; Péturs Árna Jónssonar, framkvæmdastjóra Heildar fasteignafélagsins og aðaleiganda útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Jóns Einars Eyjólfssonar, stjórnarmanns hjá Elju starfsmannaþjónustu, og Arnars Haukssonar, sem starfað hefur sem stjórnandi hjá Elju. Skrifaði Hjálmar tvær fréttir um málið á vef Samstöðvarinnar. Fyrirsagnir þeirra voru: „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ og „Lést í húsi Péturs, Jóns Einars og Arnars.“ Var höfðað mál á hendur honum annars vegar af hálfu Elju - þjónustumiðstöðvar atvinnulífsins og hins vegar af fjárfestunum þremur. Kröfðust þeir að þrenn ummæli í fréttunum yrðu dæmd dauð og ómerk. Ummælin sem þremenningarnir kröfðust að yrðu dæmd dauð og ómerk voru: 1. Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi 2. Nú hafa þessir vafasömu starfshættir dregið mann til dauða. 3. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það má hafa góðar tekjur af þrælahaldi. Svo er raunin með Elju. Dómar Landsréttar voru kveðnir upp í gær. Fram kom meðal annars að við heildstætt mat á ummælum Hjálmars yrði að leggja til grundvallar að þau hefðu verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu um aðstæður og aðbúnað erlends verkafólks hér á landi, einkum búsetuaðstæður þess, að umræða um þessi atriði ætti erindi við almenning. Í báðum dómum segir að ekki verði annað talið en að með fyrrgreindum orðum væri almennt vísað til tiltekinnar starfsemi sem kalla megi nútíma þrælahald og dregið hafi mann til dauða hér á landi, án þess að fullyrt væri að félagið eða fyrirsvarsmenn þess hafi beinlínis orðið valdir að dauða hans. Fólk á bakvið allar ákvarðanir „Nú getum við sagt það fullum hálsi, að þetta er nútíma þrælahald sem þeir eru að stunda. Það er búið að staðfesta að það má alveg,“ segir Hjálmar. Hann segist vona að dómurinn feli í sér skilaboð til hins opinbera um að stunda ekki viðskipti við slíkar starfsmannaþjónustur. „Mér var bara misboðið þegar þetta gerðist aftur að þarna væri einhver að brenna inni. Þetta var ekki fyrsta skiptið og mér fannst í rauninni mikilvægt að þarna væru einhver andlit og nöfn á bakvið þetta,“ segir Hjálmar og vísar þar til starfsmannaþjónusta almennt og til eldsvoða sem hafa komið upp í ósamþykktu íbúahúsnæði, meðal annars í Árbæ og í Hafnarfirði. „Það er ákveðinn galli hjá mörgum blaðamönnum að velja að nefna alltaf stofnanir og hús, sem þýða ekki neitt. Það eru alltaf einhverjir menn sem bera ábyrgð. Þarna eru menn sem bera ábyrgð, ekki bara fyrirtæki út í bæ, menn sem eiga Viðskiptablaðið. Þetta er allt tengt, það er hugsunin mín með því að birta nöfn og andlit, það er alltaf fólk á bakvið allar ákvarðanir.“ Eru þessar málalyktir sigur fyrir blaðamennsku? „Við segjum það bara.“ Fjölmiðlar Dómsmál Bruni á Funahöfða Tjáningarfrelsi Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Sjá meira
„Það er í rauninni bara magnað að þeir vilji beina athyglinni að sinni skítlegu hegðun aftur og aftur með því að áfrýja þessu máli,“ segir Hjálmar Friðriksson blaðamaður í samtali við Vísi. Greint var frá því í gær að Hjálmar hefði verið sýknaður í tveimur dómsmálum vegna frétta sem hann skrifaði um eld sem kom upp í iðnaðarhúsnæði í Funahöfða í Reykjavík 16. október 2023. Einn lést í brunanum en fjöldi fólks bjó í húsinu, að megninu til erlent verkafólk. Sagði um nútímaþrælahald að ræða Fram kom í fréttum í kringum eldsvoðann að húsnæðið væri að mestu í eigu tveggja félaga í eigu þriggja manna; Péturs Árna Jónssonar, framkvæmdastjóra Heildar fasteignafélagsins og aðaleiganda útgáfufélags Viðskiptablaðsins, Jóns Einars Eyjólfssonar, stjórnarmanns hjá Elju starfsmannaþjónustu, og Arnars Haukssonar, sem starfað hefur sem stjórnandi hjá Elju. Skrifaði Hjálmar tvær fréttir um málið á vef Samstöðvarinnar. Fyrirsagnir þeirra voru: „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ og „Lést í húsi Péturs, Jóns Einars og Arnars.“ Var höfðað mál á hendur honum annars vegar af hálfu Elju - þjónustumiðstöðvar atvinnulífsins og hins vegar af fjárfestunum þremur. Kröfðust þeir að þrenn ummæli í fréttunum yrðu dæmd dauð og ómerk. Ummælin sem þremenningarnir kröfðust að yrðu dæmd dauð og ómerk voru: 1. Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi 2. Nú hafa þessir vafasömu starfshættir dregið mann til dauða. 3. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það má hafa góðar tekjur af þrælahaldi. Svo er raunin með Elju. Dómar Landsréttar voru kveðnir upp í gær. Fram kom meðal annars að við heildstætt mat á ummælum Hjálmars yrði að leggja til grundvallar að þau hefðu verið liður í almennri þjóðfélagsumræðu um aðstæður og aðbúnað erlends verkafólks hér á landi, einkum búsetuaðstæður þess, að umræða um þessi atriði ætti erindi við almenning. Í báðum dómum segir að ekki verði annað talið en að með fyrrgreindum orðum væri almennt vísað til tiltekinnar starfsemi sem kalla megi nútíma þrælahald og dregið hafi mann til dauða hér á landi, án þess að fullyrt væri að félagið eða fyrirsvarsmenn þess hafi beinlínis orðið valdir að dauða hans. Fólk á bakvið allar ákvarðanir „Nú getum við sagt það fullum hálsi, að þetta er nútíma þrælahald sem þeir eru að stunda. Það er búið að staðfesta að það má alveg,“ segir Hjálmar. Hann segist vona að dómurinn feli í sér skilaboð til hins opinbera um að stunda ekki viðskipti við slíkar starfsmannaþjónustur. „Mér var bara misboðið þegar þetta gerðist aftur að þarna væri einhver að brenna inni. Þetta var ekki fyrsta skiptið og mér fannst í rauninni mikilvægt að þarna væru einhver andlit og nöfn á bakvið þetta,“ segir Hjálmar og vísar þar til starfsmannaþjónusta almennt og til eldsvoða sem hafa komið upp í ósamþykktu íbúahúsnæði, meðal annars í Árbæ og í Hafnarfirði. „Það er ákveðinn galli hjá mörgum blaðamönnum að velja að nefna alltaf stofnanir og hús, sem þýða ekki neitt. Það eru alltaf einhverjir menn sem bera ábyrgð. Þarna eru menn sem bera ábyrgð, ekki bara fyrirtæki út í bæ, menn sem eiga Viðskiptablaðið. Þetta er allt tengt, það er hugsunin mín með því að birta nöfn og andlit, það er alltaf fólk á bakvið allar ákvarðanir.“ Eru þessar málalyktir sigur fyrir blaðamennsku? „Við segjum það bara.“
Ummælin sem þremenningarnir kröfðust að yrðu dæmd dauð og ómerk voru: 1. Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi 2. Nú hafa þessir vafasömu starfshættir dregið mann til dauða. 3. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það má hafa góðar tekjur af þrælahaldi. Svo er raunin með Elju.
Fjölmiðlar Dómsmál Bruni á Funahöfða Tjáningarfrelsi Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Fleiri fréttir Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Sjá meira