Åberg spilaði rassinn úr buxunum og Young vann Players Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2026 22:50 Cameron Young stóð uppi sem sigurvegari á Players-meistaramótinu 2026. getty/David Cannon Eftir að hafa verið með þriggja högga forystu fyrir lokadag Players-meistaramótsins í golfi fór Ludvig Åberg illa að ráði sínu þegar allt var undir. Cameron Young nýtti sér mistök Svíans og tryggði sér sigurinn.
Åberg var í fínum málum framan af lokadeginum en á seinni níu seig á ógæfuhliðina hjá honum. Eftir að hafa leikið fyrri níu holurnar á pari lék Åberg seinni níu á samtals fjórum höggum yfir pari. Young var í 3. sæti fyrir lokahringinn. Hann spilaði hann vel og var í harðri baráttu við Matt Fitzpatrick um sigurinn. Þeir voru jafnir fyrir lokaholuna, á þrettán höggum undir pari. Fitzpatrick þurfti að setja niður pútt til að ná pari en brást bogalistin. Young urðu hins vegar ekki á nein mistök og tryggði sér sigurinn á Players. The winning moment for Cameron Young.#THEPLAYERSpic.twitter.com/Wc9ItXA2qv— THE PLAYERS (@THEPLAYERS) March 15, 2026 Þetta var annar sigur Young á PGA-mótaröðinni en hann hafði áður unnið Wyndham Championship síðasta sumar. Young lék hringina fjóra á Players á samtals þrettán höggum undir pari, einu höggi á undan Fitzpatrick. Xander Schauffele varð þriðji á ellefu höggum undir pari. Robert McIntyre endaði í 4. sæti á tíu höggum undir pari og Åberg, Sudarshan Yellamaraju og Jacob Brigdeman deildu 5. sætinu á níu höggum undir pari.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira