Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Árni Sæberg skrifar 17. mars 2026 13:34 Guðrún tilkynnti á þingfundi gærdagsins að hún myndi leggja fram breytingatillögu. Vísir/Vilhelm Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun leggja til breytingu á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, meðal annars þess efnis að atkvæðagreiðslunni verði frestað fram í október. „
Þegar þjóðin þarf að taka afstöðu til næsta skrefs í átt að Evrópusambandinu á hún rétt á skýrum upplýsingum og vandaðri umræðu um málið. Þess vegna tilkynnti ég í ræðu minni á Alþingi í gær að ég muni leggja fram breytingatillögu við þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar,“ segir Guðrún í færslu á Facebook. Fyrri umræðu lokið Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis. Guðrún segir að í fyrsta lagi muni hún leggja til að fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu verði frestað frá 29. ágúst til 17. október 2026. „Ástæðan er einföld. Málið er of mikilvægt til að það sé keyrt áfram á hlaupum, með takmarkaðri umræðu og á þeim tíma sem Alþingi er ekki að störfum. Þjóðin á rétt á því að fá nægan tíma til að kynna sér málið og mynda sér upplýsta skoðun.“ Skýra þurfi spurninguna Í öðru lagi muni hún leggja til breytingu á orðalagi spurningarinnar sem leggja eigi fyrir þjóðina. Spurningin verði að vera skýr og hún verði að endurspegla það hvað felst í því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Það sé ekki í boði að leggja fyrir þjóðina óskýra eða villandi spurningu í svona afdrifaríku máli. Þingsályktunartillagan sem liggur nú fyrir þinginu er nokkuð skorinorð og hljóðar svo: Alþingi ályktar að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 um hvort aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið skuli fram haldið. Eftirfarandi spurning verði borin upp í þjóðaratkvæðagreiðslunni: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?❏ Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.❏ Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“ Treystir þjóðinni Guðrún segist í þriðja lagi munu leggja til að utanríkismálanefnd leiti til Feneyjanefndarinnar um ráðgjöf. Það þurfi að tryggja að orðalag spurningarinnar og framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar standist bæði íslensk lög og alþjóðleg viðmið um þjóðaratkvæðagreiðslur. Nefnd Evrópuráðsins um lýðræði með lögum, sem í daglegu tali er kölluð Feneyjanefndin, er ráðgjafarnefnd Evrópuráðsins um stjórnskipunarmál. „Ég treysti þjóðinni til að taka afstöðu í þessu máli. Þjóðin á þann rétt að vita um hvað hún er spurð og hvað getur tekið við. Það er lágmarkskrafa í lýðræðisríki,“ segir Guðrún.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Evrópusambandið Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Sjá meira