Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Freyja Þórisdóttir skrifar 18. mars 2026 17:52 Ísland.is var fyrst sett í loftið um aldamótin, síðan þá hefur vefurinn tekið stakkaskiptum. Getty Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), hefur sendi frá sér í dag rökstutt álit þar sem Íslandi er gert að breyta miðlægri stafrænni upplýsinga- og þjónustumiðstöð sinni. Vefsíðan sem er sögð vera þjónustumiðstöð fyrir landið, island.is, uppfyllir ekki EES-reglur.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá samtökunum. Stafrænum upplýsinga- og þjónustumiðstöðvum er ætlað að gera einstaklingum og þjónustuveitendum mögulegt að veita þjónustu í öðrum EES-ríkjum. Þá er tilgangur þeirra einnig að gera þjónustuveitendum kleift að ljúka allri opinberri skráningu og viðurkenningu á starfsréttindum með rafrænum hætti á einni vefsíðu. Að mati ESA, sem lesa má í heild sinni hér, hefur ekki tekist nógu vel til að koma slíkri þjónustumiðstöð á fót hér á landi. Málið fyrst opnað árið 2020 Meðal þess sem er sett út á island.is, en hann er sagður vera þjónustumiðstöð Íslands samkvæmt tilkynningunni, er að „þar sé ekki að finna nauðsynlegar upplýsingar fyrir þjónustuaðila frá öðrum EES-ríkjum.“ Málið var opnað að frumkvæði ESA árið 2020 en formlegt áminningarbréf var sent Íslandi í mars 2023. Þar segir: „Með því að hafa ekki komið á fót vefsíðu sem þjónaði sem miðlæg stafræn upplýsinga- og þjónustumiðstöð hefði Ísland ekki uppfyllt skyldur sínar samkvæmt EES-samningnum.“ Hafa tvo mánuði Þrátt fyrir að álitið setji að mestu út á íslensku þjónustumiðstöðina er einnig tekið þar fram að „íslenska ríkið hafi náð ákveðnum framförum við að koma íslensku þjónustumiðstöðinni á laggirnar.“ Það vanti hins vegar enn mikilvægar upplýsingar á vefinn og að uppbygging island.is sé með þeim hætti að erlendum þjónustuveitendum sé ekki ljóst að vefurinn sé íslenska þjónustumiðstöðin. Þetta segir einnig í tilkynningunni. Álitið er annað skrefið í formlegu brotaferli ESA. Nú hafa íslensk stjórnvöld tvo mánuði til að „koma sínum sjónarmiðum á framfæri,“ segir í tilkynningunni en að því loknu getur ESA ákveðið hvort vísa eigi málinu til EFTA-dómstólsins.
EFTA Stjórnsýsla Utanríkismál Rekstur hins opinbera Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fleiri fréttir Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum Sjá meira