Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 18. mars 2026 19:02 Jón ræddi við fréttastofu í hesthúsinu, þar sem hann segist finna athvarf gegn sorginni. Vísir/Bjarni Faðir drengs sem lést í eldsvoða á Stuðlum segir að kerfið sem átti að bjarga barninu sínu hafi drepið það. Í rannsókn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar kemur fram að koma hefði mátt í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar. Níu eru með stöðu sakbornings í málinu.
HMS birti í dag skýrslu eftir ítarlega rannsókn á brunanum á Stuðlum í október 2024. Þar segir að rannsóknin hafi leitt í ljós alvarlega annmarka á brunavörnum. Hinn sautján ára gamli Geir Örn Jacobsen sem var í neyðarvistun á Stuðlum lést í eldsvoðanum en í skýrslunni segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát og draga úr þeirri hættu sem skapaðist ef brunavarnir hefðu virkar í samræmi við brunahönnun og rýmingaráætlun. Aflæsingarbúnaður virkjaðist ekki Jón K. Jacobsen faðir Geirs segir skýrsluna ekki koma sér á óvart. „Þetta er svaka högg. Ef verkferlar og þetta sem á að vera í lagi hefði virkað þá hefði verið hægt að koma í veg fyrir andlát. Kerfið sem átti að bjarga barninu mínu, það eiginlega drap það. Bara hrein íslenska.“ Í skýrslu HMS segir að þegar brunaviðvörunarkerfi hafi farið í gang hafi reyklúgur ekki opnast og aflæsingarbúnaður dyra ekki virkjast. Hurðir hafi því haldist læstar og flóttaleiðir verið óaðgengilegar. Ekki hafi verið unnið í samræmi við rýmingaráætlun, sem hafi verið sérstaklega mikilvægt þar sem vistmenn voru innilokaðir og komust ekki út án aðstoðar. Segir yfirmenn og ráðamenn bera ábyrgð Einn vistmaður fannst til að mynda meðvitundarlaus í starfsmannarými en honum var fylgt þangað í stað þess að vera færður út. Hurð að starfsmannarými var opnuð og reykur streymdi inn. Málið er til rannsóknar lögreglu og eru níu manns með réttarstöðu sakbornings. „Það eru tveir starfsmenn sem eiga nú að vera þrír þessa umræddu nótt. Þeir eru að fúnkera í kerfi, það eru yfirmenn, það eru ráðamenn, það eru þeir sem ég vill að beri ábyrgð á þessu,“ segir Jón. „Þetta er ekki stríð við kerfið í mínum huga, ég vil sjá breytingar og auðvitað er þetta áfall fyrir starfsfólk stuðla, eigum við að vera að sakast við þá?“
Lögreglumál Börn og uppeldi Málefni Stuðla Meðferðarheimili Slysavarnir Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira