Airbnb-lög samþykkt: Íbúðir eigi að nýtast sem heimili Birgir Olgeirsson skrifar 20. mars 2026 14:03 Kristján Þórður Snæbjarnason er þingmaður Samfylkingarinnar og á sæti í atvinnuveganefnd. Vísir/Vilhelm Ný lög um skammtímaleigu heimila fólki að leigja út eigið lögheimili, sumarbústaði og húsnæði í dreifbýli. Á sama tíma er skammtímaleiga annarra eigna í þéttbýli hert, með það að markmiði að auka framboð á húsnæði.
Frumvarp um lagabreytinguna var lagt fram af Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og var samþykkt á Alþingi í gær en þau hafa oftast verið kennd við Airbnb-skammtímaleigufyrirkomulagið. „Með lögunum er auðvitað verið að tryggja að fólk geti leigt út lögheimili sitt í skammtímaleigu eins og verið hefur. Það getur jafnframt leigt út til dæmis sumarbústað eða húsnæði sem er í dreifbýli,” segir Kristján Þórður Snæbjarnarson sem á sæti í atvinnuveganefnd Alþingis fyrir hönd Samfylkingarinnar. „En það er verið að takmarka í raun og veru að aðrar eignir séu í skammtímaleigu í þéttbýli hér á landi, nema þú þurfir sem sagt að vera með lögheimili í þeirri eign sem þú ert að leigja út. Og það er auðvitað svona þessi grundvallarhugsun sem er í skammtímaleigufyrirkomulaginu, Airbnb eins og við þekkjum, að fólk sé að leigja út íbúðarhúsnæði sitt þegar það skreppur í frí eða fer annað. En hugsunin er ekki endilega að vera með það sem atvinnustarfsemi í lögheimili fólks,” segir Kristján Þórður. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.Vísir/lýður valberg Vonast er til að breytingin verði til þess að íbúðum fjölgi sem eru til ráðstöfunar í þéttbýli. „Ég held að þetta muni líka hafa áhrif á þá verðmyndun sem er á leigumarkaði. Þannig að samkeppni um íbúðarleigu verður jafnari fyrir fólk sem er í langtímaleigu,” segir Kristján. Grundvallarhugsunin sé sú að tryggja að íbúðahús sem verið sé að byggja nýtist sem heimili fólks. „En ekki sem fjárfestingarvara til þess að stunda atvinnustarfsemi og það er svona grunnhugsunin í þessum breytingum og öðrum breytingum sem að við erum að vinna með inni á Alþingi, að mæta þeim skorti sem er á fasteignamarkaði og þetta er stór liður í því, þeirri vegferð.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Airbnb Húsnæðismál Ferðaþjónusta Alþingi Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Sjá meira