„Heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 20. mars 2026 12:20 Hafsteinn Viggó Hafsteinsson, starfsmaður Fóðurblöndunnar. vísir/bjarni/vilhelm Einn liggur þungt haldinn á spítala eftir að sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Korngörðum upp úr klukkan sjö í morgun. Sjónarvottur segir að sér sé illa brugðið eftir atvikið. Ringulreiðin og öskrin sem fylgdu hafi verið verulega óþægileg.
Lögreglunni barst tilkynning laust upp úr klukkan sjö í morgun vegna sprengingar sem varð á sjöttu hæð í vinnsluhúsi Fóðurblöndunnar við Korngarða í Reykjavík. Þegar viðbragðsaðila bar að garði var stórt gat á hlið hússins en enginn eldur. Sextán manns voru í húsinu, bæði starfsmenn Fóðurblöndunnar og verktakar sem voru þar við suðuvinnu. Svæðið var fljótlega rýmt og vettvangur tryggður. Þrír voru fluttir á sjúkrahús. Einn var fljótlega útskrifaður en tveir voru með áverka. Annar þeirra er alvarlega slasaður. Umfangsmikið viðbragð Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að vel hafi tekist að tryggja vettvang. Nú taki við að rannsaka tildrög slyssins. „Það blasti við sem er hérna fyrir aftan mig að það vantaði hlið á húsið. Svo þurftum við að vinna okkur áfram inn í húsið og bjarga fólki sem var þar við störf. Við erum ekki komnir með mynd á hvað veldur sprengingunni en það voru menn að vinna í þessu rými þar sem sprengingin varð.“ Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var sent á vettvang. Brynjar Friðriksson, sviðsstjóri aðgerðarsviðs Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, segir þilið sem sprakk af hlið hússins enn liggja á lægra þaki byggingarinnar. Er einhver hætta sem fylgir því ef það fer að fjúka? „Það er sú vinna sem fer í gang núna. Tryggingarfélagið tekur við húsinu með eigendum þegar lögreglan er búin með rannsókn og fer að tryggja húsið og passa að það verði ekki frekara tjón af húsinu eða hlutunum sem eru hérna að fjúka í kringum okkur. Þetta er bygging með tveimur sílóum í og þessi partur af byggingunni er byggður þannig að hann á að gefa eftir ef það verður sprenging í húsinu.“ Óraunverulegt og óþægilegt Hafsteinn Viggó Hafsteinsson, starfsmaður Fóðurblöndunnar, var meðal þeirra sem voru á vettvangi þegar sprengingin varð. Hann var þá að mæta til vinnu og segir óraunveruleikatilfinningu hafa gripið hann þegar sprengingin varð. „Þetta var eins óraunverulegt og það gerist. Þetta var eins og eitthvað sem maður á bara að sjá í bíómynd,“ segir hann og bætir við: „Ég bara mætti í vinnuna og horfði á húsið eins og maður gerir alla daga. Síðan bara sprakk veggurinn af og það hrundi allt í sundur.“ Hvernig leið þér að sjá það? „Þetta var bara mjög óþægilegt.“ Hafðirðu miklar áhyggjur? „Já, það heyrðust öskur þarna uppi og það er ekkert þægilegt.“ Hafsteinn Viggó Hafsteinsson, starfsmaður hjá Fóðurblöndunni.vísir/bjarni Starfsfólki illa brugðið Rauði krossinn hugaði að starfsfólki á vettvangi í morgun. Álfheiður Svana Kristjánsdóttir neyðarvarnarfulltrúi var þar ásamt minnst tveimur öðrum frá Rauða krossinum. Nú er unnið að því að setja upp plan með Fóðurblöndunni og verktakafyrirtækinu um hvernig er best hægt að styðja við starfsfólk. Boðið verður upp á áfallahjálp. „Það er boðið upp á áfallahjálp og það er eitthvað sem gerist í dag og á næstu dögum en ekki í hringiðu atburða.“ Hvernig var hljóðið í því starfsfólki sem þú ræddir við? Var fólki illa brugðið? „Fólki er illa brugðið við svona en það sést að þetta eru góðir vinnustaðir. Það er mikil samstaða og fólk var mest að hlúa hvert að öðru, sem er mikilvægast á svona stundu. “ Hún hvetur fólk til að leita til Rauða krossins. „Við erum í samvinnu við bæði fyrirtækin og þau vita að dyrnar okkar eru alltaf opnar. Við erum að vinna saman að verkefnum og samveru. Það er mikilvægt að muna að svona atburðir geta vakið upp gömul áföll. Við þurfum að passa að hlúa vel að hvoru öðru. Það er líka mikilvægt að muna að það er gott að spjalla við aðra um líðan sína.“
Slökkvilið Lögreglumál Reykjavík Sprenging hjá Fóðurblöndunni Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Sjá meira