Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. mars 2026 13:55 Edda steig á svið í Þetta er Laddi í gærkvöldi og mun leika í sýningunni á völdum dagetningum í vor. Leikkonan Edda Björgvinsdóttir átti óvænta innkomu í sýningunni Þetta er Laddi í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Þar steig hún inn í nokkur atriði með karakterum sem eru henni góðkunnir og mun hún fara með hlutverk í sýningunni á völdum dagsetningum út vorið.
Edda hafði gefið vísbendingu um að hún yrði á svæðinu með Facebook-færslu sem hún birti um ellefuleytið í gærkvöldi. „Ég er að fara á Ladda sýninguna í kvöld. Og til þín Laddi minn - ég gæti þurft að lagfæra ýmis atriði sem mér skilst að séu í sýningunni þinni .....“ skrifaði hún í færslunni. Mikið gaman, mikið grín. „Þú veist bara af því að ég verð kannski að stússa þarna eitthvað á sviðinu - þú heldur bara áfram að grína á meðan🤣🤣🤣“ Færslan vakti töluverð viðbrögð hjá vinum Eddu og skrifaði síða Borgarleikhússins ummæli við færsluna: „Við hlökkum til að sjá þig! Hversu síð þarf hárkollan að vera?“ Svo fór að Edda steig á svið með leikhópnum í gærkvöldi og var þar í nokkrum senum. Edda á auðvitað langt og gott samband við Ladda eftir að hafa leikið ótal sinnum með honum áður á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Svipmyndir úr sýningunni. Edda á sömuleiðis hlut í ýmsum persónum sem koma fram í sýningunni og hafði tjáð opinberlega áhuga sinn á því að stíga á svið og aðstoða leikarana við að ná hárréttum tóni í gríninu. „Það er óhætt að segja að salurinn hafi tryllst úr hlátri þegar Edda steig á svið í gær,“ sagði Egill Heiðar Anton Pálsson, Borgarleikhússtjóri, um innkomu leikkonunnar. Laddi og Edda í Stellu. Edda mun jafnframt fara með hlutverk í sýningunni út vorið, á völdum dagsetningum, en allra síðustu sýningar eru komnar í sölu og verður lokasýning þann 9. maí. „Leikhúsgestir eiga von á góðu, Laddi og Edda eru bæði þjóðargersemar og þegar þau stíga saman á svið verða til einhverjir ótrúlegir galdrar,“ sagði Egill Heiðar.
Borgarleikhúsið Leikhús Mest lesið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Lífið samstarf „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira