Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 21. mars 2026 12:38 Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á sprengingunni sem varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Reykjavík í gærmorgun gæti tekið vikur og jafnvel mánuði. Taka þurfi skýrslur af mörgum vitnum.
Karlmaður á fertugsaldri lést af sárum sínum eftir spenginguna og annar er á spítala með áverka. Viðbragðsaðilar fengu neyðarútkall á áttunda tímanum í gær og þótti strax ljóst að alvarlegt slys hefði orðið en stærðarinnar gat kom í vegginn við sprenginguna á hæð þar sem sextán manns voru að störfum. Starfsmaður sem var á leið í vinnuna í gær lýsti því fyrir fréttastofu að hann hefði upplifað óraunveruleikatilfinningu að heyra sprenginguna og í kjölfarið ópin og köllin frá samstarfsfélögum á hæðinni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi síðan tilkynningu síðdegis í gær með þeim upplýsingum að einn sem lenti í slysinu og lá þungt haldinn á spítala hefði látist. Árni Friðleifsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Árni, í gærmorgun varð skelfilegt slys. Hvað geturðu sagt okkur um rannsóknina? „Já, lögreglan tók við vettvangi upp úr klukkan tíu í gær og það er bara rannsókn ennþá í gangi og í sjálfu sér lítið hægt að segja um hana í bili.“ Telurðu að hún muni taka langan tíma? „Já, þetta tekur einhvern tíma sko. Það er eiginlega ómögulegt að segja bara á þessari stundu hvað svona rannsókn tekur. Það eru margir þættir sem þarf að rannsaka, það þarf að ræða við vitni og taka af þeim skýrslur þannig að það er ómögulegt að segja hvort þetta taki einhverja daga eða vikur eða jafnvel mánuði,“ segir Árni.Þetta var grafalvarlegt slys. Maður lést í gær og annar er sagður vera með mikla áverka eftir sprenginguna. Hefurðu einhverjar upplýsingar um líðan þess manns? „Nei, ekki annað en að hann liggur á spítala og hérna, annað veit ég ekki,“sagði Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Sprenging hjá Fóðurblöndunni Lögreglumál Vinnuslys Reykjavík Tengdar fréttir Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða. 20. mars 2026 13:00 „Auðvitað mikið áfall“ Karlmaður á fertugsaldri lést eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar og annar er alvarlega slasaður. Mennirnir voru að sinna viðhaldsvinnu við tóman tank þegar sprengingin varð. Framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar segir um áfall að ræða. 20. mars 2026 18:51 Lést í sprengingunni Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík í morgun. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og annar þeirra er alvarlega slasaður. Talið er að um ryksprengingu í tómum tanki hafi verið að ræða. 20. mars 2026 15:14 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Sjá meira
Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða. 20. mars 2026 13:00
„Auðvitað mikið áfall“ Karlmaður á fertugsaldri lést eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar og annar er alvarlega slasaður. Mennirnir voru að sinna viðhaldsvinnu við tóman tank þegar sprengingin varð. Framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar segir um áfall að ræða. 20. mars 2026 18:51
Lést í sprengingunni Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík í morgun. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og annar þeirra er alvarlega slasaður. Talið er að um ryksprengingu í tómum tanki hafi verið að ræða. 20. mars 2026 15:14