Þrjár nýjar rennibrautir á Sauðárkróki í sumar Lovísa Arnardóttir skrifar 23. mars 2026 14:59 Sundlaugin á Sauðárkróki í fyrrasumar. Skagafjordur.is Þrjár nýjar rennibrautir verða teknar í notkun í sundlauginni á Sauðárkróki í sumar. Sú hæsta er 65 metra löng með fjórum slaufum og er lokuð. Önnur rennibrautin er breið og opin og 8,5 metra löng. Sú þriðja er fimm metra löng, lokuð og er aðeins í eins metra hæð og því fyrir yngstu börnin.
Fram kemur í tilkynningu frá sveitarfélaginu Skagafirði að Fjársýsla ríkisins hafi fyrir hönd sveitarfélagsins sett framkvæmdina í útboð síðasta sumar. Tilboð Sportís hafi verið metið hagkvæmast að teknu tilliti til verðs- og gæðamats. Stigagangurinn verður upplýstur og upphitaður. Skagafjörður „Um er að ræða þrjár rennibrautir, þar af tvær sem tengjast við nýjan 12 m. háan uppgönguturn. Turninn verður upphitaður, klæddur plexigleri og með LED-lýsingu. Ljóst er að mannvirkið mun setja svip sinn á bæinn,“ segir í tilkynningunni. Enginn rennur í sömu laug í nýju rennibrautunum. Skagafjörður Þar kemur einnig fram að verktakar á vegum Sportís vinni nú að því að undirbúa undirstöður mannvirkjanna. Reiknað er með því samkvæmt tilkynningu að sjálfar rennibrautirnar og turninn verði komin hingað til lands í maí. Uppsetning þeirra hefjist í kjölfarið og ef allt gengur að óskum megi gera ráð fyrir að mannvirkið verði tekið í notkun í júní. Tvær eru tengdar í sama stigagang og sú þriðja til hliðarSkagafjörður Um rennibrautirnar segir í tilkynningunni: Hæsta rennibrautin verður 65 m. löng, með fjórum slaufum og fallhæð hennar 9,5 m. frá hæstu stöðu og niður í lendingarbraut, sem er 10 m. á lengd. Rennibrautin verður í lokuðu, heilu röri, með tveimur ljósagöngum á leiðinni. Rennibrautin sem er neðar í turninum er breið og opin, 8,5 m. löng og fallhæð 2,5 m. frá hæstu stöðu og niður í lendingarlaugina sem er vestast á nýja sundlaugarsvæðinu. Þriðja rennibrautin er einnig í lokuðu, heilu röri. Lengd hennar er 5 m. og fallhæð 1 m. Lendingarsvæði hennar er í minni kennslulauginni á nýja sundlaugarsvæðinu.
Skagafjörður Sund Sundlaugar og baðlón Börn og uppeldi Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? Erlent Fleiri fréttir Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Sjá meira