„Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér“ Smári Jökull Jónsson skrifar 25. mars 2026 12:04 Hjalti Guðmundsson er skrifstofustjóri borgarlandsins sem sér um snjómokstur hjá Reykjavíkurborg. Vísir Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu í fyrramálið vegna suðaustan storms og stórhríðar. Skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg býst við að verulega hægist á umferð og segir að viðbragðsáætlun vegna veðursins hafi verið virkjuð.
Appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og Suðurlandi klukkan sjö í fyrramálið og er búist við suðaustan 23-33 metrum á sekúndu með mjög snörpum vindhviðum sem gætu farið allt upp í 45 metra á sekúndu á Kjalarnesi, við Hafnarfjall og undir Eyjafjöllum. Þá verður stórhríð á Hellisheiði og í Þrengslum. Einnig er fólk hvatt til að huga að lausamunum þar sem hætta verður á foktjóni. Erfið færð á mesta umferðartímanum Viðvaranirnar eru í gildi til klukkan eitt eftir hádegið og má búast við versnandi færð á höfuðborgarsvæðinu strax í fyrramálið. Hjalti Guðmundsson, skrifstofustjóri borgarlandsins hjá Reykjavíkurborg, segir að veðurspár geri ráð fyrir snjókomu sem fari síðan yfir í rigningu og að búið sé að virkja viðbragðsáætlun sem feli í sér upplýsingagjöf til almennings auk verklegra þátta sem þarf að undirbúa. „Snjókoman verður á mesta umferðartímanum sýnist mér, þannig að það gæti orðið svolítið blint. Umferðin kemur til með að hægja verulega á sér geri ég ráð fyrir,“ sagði Hjalti í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Segir vanbúna bíla geta valdið miklum töfum Búið sé að undirbúa bæði mannskap og vélar fyrir það ástand sem spáð er. „Við erum tilbúin með okkar vélar, verktaka og mannskap til að takast á við þessar aðstæður. Svo er það bara tæknileg umræða þegar þetta er að ganga yfir hvenær við köllum út og hvenær er árangursríkast að kalla út,“ bætir Hjalti við. Hvaða skilaboðum vilt þú koma til almennings fyrir hvellinn í fyrramálið? „Bara að fara varlega fyrst og fremst og alls ekki fara út á vanbúnum bílum. Það er kannski fyrst og fremst það sem gildir. Einn til tveir vanbúnir bílar geta valdið miklum töfum í samgöngukerfinu þannig að fólk mætti aðeins hugsa til þess,“ segir Hjalti að lokum.
Veður Umferð Snjómokstur Færð á vegum Óveður 26. mars 2026 Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira