Vann fyrsta titilinn eftir aðgerð á heila: „Ég var ekki einn í dag“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2026 09:32 Gary Woodland fagnar sigrinum á Houston Open með því að faðma eiginkonu sínu, Gabby Granado. getty/Jordan Bank Engum duldist hversu mikla þýðingu sigurinn á Houston Open hafði fyrir bandaríska kylfinginn Gary Woodland. Hann hefur gengið í gegnum mikla erfiðleika undanfarin misseri.
Woodland lék samtals á 21 höggi undir pari á Houston Open og var fimm höggum á undan Dananum Nicolai Højgaard. Áhorfendur á Memorial Park-golfvellinum studdu vel við bakið á Woodland og kölluðu nafn hans þegar hann var á lokaholunni. Eftir að hafa sett niður pútt fyrir pari horfði hann til himins og tárin runnu niður kinnar hans þegar hann faðmaði eiginkonu sína. What a moment ❤️ pic.twitter.com/nwPC0Y75sf— PGA TOUR (@PGATOUR) March 29, 2026 „Við keppum í einstaklingsíþrótt en ég var ekki einn í dag,“ sagði Woodland eftir mótið. „Allir sem eru að glíma við eitthvað, ég vona að þeir sjái mig og gefist ekki upp. Haldið áfram að berjast.“ "We play an individual sport but I wasn't alone today."An emotional Gary Woodland reflects on his win only a few years removed from brain surgery. pic.twitter.com/jflXsA3AcR— PGA TOUR (@PGATOUR) March 29, 2026 Woodland hefur svo sannarlega þurft að glíma við sinn skerf af mótlæti. Í september 2023 gekkst hann undir aðgerð þar sem æxli var fjarlægt úr heila hans. Woodland sneri aftur á völlinn og varð meðal annars í 2. sæti á Houston Open í fyrra. En hann glímdi við áfallastreituröskun og greindi frá þeirri baráttu í viðtali við Golf Channel fyrir tveimur vikum. Þurfti að hjálpa sjálfum sér „Ég er þakklátur fyrir hugulsemina og stuðninginn. En innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja og ég lifi í lygi. Ég vil að draumar mínir rætist og ég njóti velgengni. Ég vil líka hjálpa fólki en átta mig núna á því að ég þarf að hjálpa sjálfum mér fyrst,“ sagði Woodland. Sigur hans á Houston Open var hans fyrsti á PGA-móti síðan hann vann Opna bandaríska í júní 2019, eða fyrir tæpum sjö árum. This is what resilience looks like. pic.twitter.com/Bt0aC0hYsm— PGA TOUR (@PGATOUR) March 29, 2026 Með sigrinum á Houston Open vann Woodland sér inn þátttökurétt á Masters sem fer fram 9.-12. apríl næstkomandi.
Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira