Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Lovísa Arnardóttir skrifar 31. mars 2026 08:10 Maðurinn var dæmdur í annað sinn í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Karlmaður var nýlega dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundins fangelsis fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Árásin átti sér stað árið 2021 og var upprunalegur dómur ómerktur í Landsrétti vegna ummæla dómara héraðsdómara í tölvupósti. Maðurinn fær nú vægari dóm en þarf að greiða brotaþola hærri miskabætur.
Árásin átti sér stað í júní árið 2021 við Kolagötu í Reykjavík. Þar réðst maðurinn að öðrum manni með ítrekuðum hnéspörkum í höfuð og búk. Maðurinn hlaut mar vinstra megin á gagnaugasvæði, yfir hægri kinnboga og á öxl og upphandlegg. Dómurinn var ómerktur í Landsrétti í nóvember í fyrra og málinu vísað aftur til Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann hafði í héraðsdómi áður verið dæmdur til sex mánaða fangelsis. Mat Landsréttar var að ummæli héraðsdómara í tölvupósti undir rekstri málsins í héraði hefðu verið þess eðlis að réttmætur vafi hafi myndast um óhlutdrægni héraðsdómarans. Yrði þegar af þeirri ástæðu að ómerkja hinn áfrýjaða dóm og vísa málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Maðurinn játaði sök fyrir dómi en viðurkenndi þó ekki að athæfið félli undir lagaákvæði um sérstaklega hættulega líkamsárás, það er 218. grein laganna. Verjandi krafðist þess að brotið félli undir 217. grein og væri þar með fyrnt. Þar segir: [Hver, sem gerist sekur um líkamsárás, enda sé hún ekki svo mikil sem í 218. gr. segir, skal sæta sektum eða [fangelsi allt að 6 mánuðum], 1) en fangelsi allt að 1 ári, ef háttsemin er sérstaklega vítaverð. Í dómi er farið yfir málsatvik og kemur þar fram að lögregla hafi aðfaranótt laugardags 26. júní verið kölluð til að Háspennu við Lækjartorg og þar komið að mönnum í átökum. Sá grunaði hafi reynt að komast undan en lögregla náði að hlaupa hann uppi og handtaka. Í dómi kemur fram að brotaþoli hafi verið vankaður eftir árásina og meðvitund hans farið dvínandi eftir því sem leið á samræður hans við lögreglu. Lentu í útistöðum við ferðamenn Brotaþoli gaf skýrslu nokkrum dögum síðar og sagðist þá hafa verið í bænum með vinum sínum og orðið fyrir árás þriggja til fjögurra stráka eftir að hafa lent í útistöðum við ferðamenn. Strákarnir hafi reynt að ýta undir deilurnar við ferðamennina en hann reynt að fá þá til að hætta og ýtt við einum þeirra. Einn þeirra hafi þá slegið til kærustu hans og kýlt hann nokkrum sinnum. Brotaþoli hljóp þá af vettvangi og faldi sig bak við Kolaportið. Strákarnir hafi fundið hann þar og haldið áfram að ráðast á hann með höggum og spörkum. Til er myndbandsupptaka af árásinni og segir í áverkavottorði frá lækni bráðamóttökunnar að endurtekin spörk í höfuð séu mögulega lífshættulegt áverkaferli þó svo að lífshættulegir áverkar hafi ekki fundist á brotaþola. Sá grunaði sagði í skýrslu fyrir dómi að hann hefði verið að skemmta sér í bænum og hefði svo lent í slagsmálum sem báðir hefðu tekið þátt í. Hann sagðist hafa talið að spörk hans í höfuð mannsins hafi verið þrjú eða fjögur en þau gætu verið sex. Tekið tillit til dráttar málsins og aldurs Að mati dómsins sýnir myndbandið að sum sparkanna hafi verið nokkuð kröftug og metur hann að ákærða hljóti að hafa verið ljóst að afleiðingarnar gætu verið afleiðingar. Dómurinn fellst því ekki á að færa brotin undir 217. grein. Fram kemur í dómi að frá því að brotið var framkvæmt hafi maðurinn gengist undir fimm lögreglusáttir vegna umferðar- og fíkniefnabrota og refsing ákvörðuð í samræmi við það en þó tekið tillit til þess að dráttur hafi verið á málinu. Með tilliti til þess og aldurs hans á verknaðarstundu er því refsing ákvörðuð fjórir mánuðir skilorðsbundnir. Brotaþola á hann svo að greiða 300 þúsund í miskabætur en hafði í fyrri dómi héraðsdóms verið gert að greiða manninum 200 þúsund krónur. Auk þess þarf maðurinn að greiða málskostnað vegna beggja mála og dráttarvexti.
Dómsmál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira