Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Göngugreining 31. mars 2026 16:07 Búnaðurinn hjá Göngugreiningu.is er einn sá fullkomnasti sem völ er á, þrýstiplata með yfir 10.000 þrýstinemum, hlaupabretti, upptökubúnaður og fullkomin hugbúnaður greinir skekkjur í hælum / ökklum og hvort hné færast út eða inn. Þrálátir verkir í stoðkerfi geta átt upptök sín í lítilli skekkju í líkamanum. Göngugreining.is hefur hjálpað tugi þúsunda Íslendinga við að jafna álagið upp líkamann með sérhönnuðum innleggjum, sérvöldum skóm og fjölbreyttum stoðvörum. „
Við ættum að vera fyrsti viðkomustaður fólks ef það finnur fyrir verkjum í líkamanum. Það þarf enga tilvísun, fólk pantar bara tíma gegnum síðuna og mætir til okkar í Lágmúla 4. Við höfum á 30 árum tekið á móti 85.000 manns í göngugreiningu og búið til um 100.000 innlegg í skó,“ segir Lýður B. Skarphéðinsson, sérfræðingur í göngugreiningu en hann rekur Göngugreining.is ásamt Elvu Björk Sveinsdóttur. Eigendurnir Lýður B. Skarphéðinsson og Elva Björk Sveinsdóttir sjá um göngugreiningar Hann segir greiningu geti leyst algeng vandamál í stoðkerfinu. Með því að laga skekkjur í hælum, ökklum og bregðast við mislengd ganglima jafnast álagið á fæturna og upp allt stoðkerfið. „ Allir ættu að fara í göngugreiningu, það er eins og að fara með bílinn í „ballanseringu“ eftir dekkjaskipti,“ „Með göngugreiningu má vinna á verkjum frá baki og niður í hæla. Við fáum til okkar fólk á öllum aldri. Yngstu börnin sem koma í göngugreiningu eru 2 og hálfs árs en skekkjur í fótum geta gert það að verkum að þau vakna grátandi á nóttunni,“ segir Lýður. Við fáum til okkar börn og unglinga í íþróttum sem æfa mikið á gervigrasi, oft með verki í hælum, vandamál sem okkur gegnur vel með. Aldurshópurinn 15- 30 ára er oft virkur í vinnu hreyfingu og íþróttum, 30 -70 ára er að ganga, hlaupa og oft að vinna á fótunum . Fólk yfir 70 stundar golf, göngur og fjölbreytta líkamsrækt. Krakkar sem æfa íþróttir, til dæmis á gervigrasi hafa notið góðs af greiningu. Hvað er gert? Göngugreiningin tekur 30 mínútur. Þá skoðum við allar skekkjur í ökklum og hvernig álagið dreifist á fæturna. Þreyfum eftir tábergssigi, ilsigi, hælspora og öðrum fótameinum. Verkir öðru megin í líkamanum gætu verið merki um að annar fóturinn sé styttri,“ útskýrir Lýður. Búnaðurinn er einn sá fullkomnasti sem völ er á, þrýstiplata með yfir 10.000 þrýstinemum, hlaupabretti, upptökubúnaður og fullkomin hugbúnaður greinir skekkjur í hælum / ökklum og hvort hné færast út eða inn. Mælum mislengd fóta, bæði frá mjöðmum og frá hnjám og niður. „Við fáum mikið af fólki eftir mjaðmaskipti og hnéskipti, oft er annar fóturinn styttri eftir liðskipti.“ Gerð innleggja og smíði fer eftir því hvert vandamálið er. Hver er lausnin? „Sérgerð innlegg eru okkar aðal tól, hitamótandi innlegg passa í skó sem bjóða ekki upp á mikið pláss s.s. fótboltaskó og skíðaskó, höggdempandi innlegg sem passa í íþróttaskó, vinnuskó og gönguskó, fínni innlegg sem passa í spariskó og einnig breytum við inniskóm. Gerð innleggja og smíði fer eftir því hvert vandamálið er og í hvað á að nota innleggin. Skór skipta miklu máli og við hjálpum fólki að velja skó miðað við fótlag og niðurstig, erum með skó frá Hoka og Asics í mismunandi breiddum og gerðum fyrir göngu, hlaup og vinnu .“ Sérvörur fyrir fætur og samstarf við heilbrigðisstarfsfólk „Við erum sérfræðingar í fótum og bjóðum margar ólíkar vörur fyrir fætur. Þar má nefna sérhæfða sokka við verkjum í iljum, þrýstisokka fyrir beinhimnubólgu og aðra fyrir útvöxt beina. Nettar en öflugar hnéhlífar, hækkunarpúða, höggdempandi púða, táskiljur og fullt af fótavörum og spelkum. Hjá okkur starfar fótaaðgerðafræðingur en stundum þarf að fjarlægja vörtur eða sigg sem myndast vegna álags, áður en hægt er að fara að nota innlegg. Markmiðið er alltaf að færa álagið á réttan stað. Ef þú ert með verki í baki, mjöðmum, hnjám, ökklum eða fótum, þá áttu að koma til okkar,“ segir Lýður. Göngugreining er til húsa í Lágmúla 4.
Heilsa Mest lesið Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Satt eða logið: Nýjar áskoranir fyrir neytendur og auglýsendur Atvinnulíf Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Viðskipti innlent Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum Viðskipti innlent Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Samstarf „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Viðskipti innlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl