„Ég táraðist í flugvélinni“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 1. apríl 2026 19:05 Erna Niluka og Brynja Dan. vísir/Lýður Valberg Mæður sem voru ættleiddar frá Srí Lanka sem kornabörn eru stöðvaðar í hvert skipti sem þær fara í gegnum landamæraeftirlit og segja það augljóst að húðliturinn skipti þar höfuðmáli. Þær hafa áhyggjur af börnum sínum sem þær segja verða fyrir meiri rasisma en þau upplifðu í æsku.
Erna Niluka og Brynja Dan hafa átt heima hér á landi allt sitt líf og segjast varla hafa upplifað rasisma til þessa. Eitt sem hefur þó ávallt verið til trafala er að fara í gegnum landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli þegar ferðast er til þjóða utan Schengen-svæðisins. Þær segjast báðar stöðvaðar í hvert skipti og teknar til hliðar. Nýlega ferðaðist Erna til Bandaríkjanna ásamt eiginmanni sínum sem ætlaði ekki að trúa að þau þyrftu að leggja snemma af stað í átt að hliðinu vegna eftirlitsins sem hún lendi að öllum líkindum í. Klippa: Ummælin rætin „Þetta er niðurlægjandi“ „Hann labbar í gegn og það er bara grænt hjá honum en síðan auðvitað blikkar allt hjá mér. Þá er ég tekin til hliðar. Ég er spurð spurninga, meðal annars hvort þetta sé eina vegabréfið mitt. Hvort ég sé að ferðast með honum og hver eru tengsl við hann og síðan er náttúrulega rótað í öllu. Þetta er náttúrulega ekkert nýtt fyrir mér, eins og ég segi hef ég gert þetta tvisvar áður. Ég hef meira að segja verið með dóttur minni og hún þarf að fara ein út í vél og ég þarf að segja henni að ég komi,“ segir Erna og heldur áfram. „Maður hugsar náttúrulega fyrst og fremst um börnin sín. Að þau þurfi að ganga í gegnum þetta og ég þarf einhvern veginn að reyna að svara fyrir það. Það er það sem er svo sárt og niðurlægjandi. Þetta er ekki bein gagnrýni á kerfið. Ég vil aukið eftirlit og aukið öryggi en það að draga fólk í dilka eftir húðlit er náttúrulega ekki fallegt og ekki rétt. Það er það sem ég hugsaði. Ég táraðist í flugvélinni að hugsa til þess að ég þyrfti að undirbúa börnin fyrir þetta,“ segir Erna. Brynja hefur sömu sögu að segja af landamæraeftirlitinu. „Ég hef alltaf verið tekin í þetta handahófskennda eftirlit. Ég hef hringt í eftirlitið og spurt hversu handahófskennt það sé en fæ engin svör svo sem. Handahófskennt er ekki alveg ... Er ekki alveg random,“ segir Brynja. Eins og gefur að skilja getur þetta vera nokkuð ergilegt. „Þetta er það. Þetta er niðurlægjandi að einhverju leyti. Því maður er þriggja barna móðir og hjúkrunarfræðingur og með flekklausa sakaskrá. Þetta er ekki þannig að maður geti ekki tekið því að vera spurð en að þurfa svara þessum spurningum þá virðist vera að húðliturinn skipti máli,“ segir Erna. Apahljóð inni á fótboltavellinum Þær segjast báðar fylgjandi auknu eftirliti og auknu öryggi við landamærin. „Ég held að við séum báðar á því að við séum fylgjandi auknu eftirliti og auknu öryggi en það sem sat í mér þegar ég kom út í vél var að ég hugsaði um börnin mín fyrst og fremst, hvaða skilaboð þau eru að fá. Það er spurning sem manni langar ekki að svara. Þegar börnin spyrja, af hverju? Þá langar manni ekki að svarið sé að húðliturinn virðist skipta máli.“ Þrátt fyrir að hafa varla upplifað rasisma að eigin sögn segjast þær finna fyrir þó nokkru bakslagi í þeim efnum undanfarin ár, fyrst og fremst í gegnum börnin sín. „Ég þarf að eiga önnur samtöl við börnin mín heldur en flestir á landinu. Þetta er það sem maður hefur séð vera að gerast úti í heimi. Bara hvort sem við tökum Bretland eða Svíþjóð. Það er komin andúð í garð útlendinga og þar skiptir einmitt húðliturinn máli. Það vekur óhug og ég er hrædd og það eru örugglega allir hræddir um börnin sín niðri í bæ. Bara við þetta ástand sem við búum við í dag. Það er eitthvað auka því hann er stór og dökkur,“ segir Brynja. „Ég hef ekki lent í miklum rasisma en maður finnur það í gegnum krakkana sína að þetta er að aukast. Eins og Brynja talaði um í kringum íþróttirnar hefur sonur minn lent í því að ókvæði hafa verið kölluð að honum og apahljóð inni á vellinum,“ segir Erna. Sagði syni hennar að fara aftur upp í tré Þau óttist að þurfa að taka þetta samtal við börnin og hjálpa þeim að eiga við mismunun og rasisma. Börnin verði fyrir meiri rasisma en þær fyrir um 30 árum síðan. „Ég ætla að segja annars eðlis. Þegar maður er að alast upp þá var ég kannski ein af tveimur til þremur dökkum í mínum skóla. Þá var þetta kannski meira forvitni og mér finnst forvitni bara falleg. Það má alveg spyrja og fræðast. Þetta er rætnara í dag og meira af ásetningi, gagngert til að særa. Eins og á Reycup þá var einhver sem sagði við hann að drulla sér aftur upp í tré. Það var í hita leiksins og bara eitthvað barn og við tækluðum það. Það er ekki gert í forvitni er fávísi heldur er þetta gagngert gert til þess að særa,“ segir Brynja. Þau taka fram að þau finni fyrir aukinni tortryggni í samfélaginu á síðustu árum. „Maður lítur á sig sem Íslending í húð og hár. Ég borða meira af uppstúf og hangikjöti en flestir af vinum mínum,“ segir Erna. „Manni bregður smá því maður er svo hvítur inni í sér. Ég gleymi því alltaf bara að ég sker mig út,“ segir Brynja.
Kynþáttafordómar Landamæri Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Fleiri fréttir Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn Sjá meira