Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Rakel Sveinsdóttir skrifar 8. apríl 2026 07:04 Náttúran á sér engin takmörk og eflaust fæstir sem myndu mótmæla því að meðganga og fæðing barna sé eitt það merkilegasta fyrirbæri sem til er af náttúrunnar hendi. Vísir/Getty Lastu fyrirsögnina tvisvar áður en þú skildir hana? Því getur það virkilega verið að sú hefð að konur fæði börn oftast nær liggjandi á bakinu, sé fyrir karlmenn frekar en konur?
Svarið við þessari spurningu er Já. Í grein sem birtist á BBC um helgina, segir að sú venja að konur liggi oftast á bakinu þegar þær fæða börn, sé venja sem rekja megi til Frakka sem taldi það einfaldlega þægilegri stöðu fyrir barneignir: Fyrir karlmanninn! Náttúrulegri leið fyrir konulíkamann er að fæða barn standandi eða í uppréttri stöðu. Á fæðingarstólum eða í hnébeygju. Í grein BBC segir meira að segja að hnébeygjustaðan geti aukið þvermál grindarinnar um að minnsta kosti 2,5 sm. Á slæmri íslensku myndum við segja: Auðvitað meikar þetta fullkomið sens. Því þegar þyngdaraflið hjálpar verður fæðingin auðveldari. Til gamans má skoða hvernig myndlist fyrri tíma styður við þá staðreynd að í gegnum aldirnar, fæddu konur börn ekki á bakinu, heldur í uppréttri stöðu. Að konur fæði börn liggjandi á bakinu er hefð sem byrjaði fyrir aðeins 300-400 árum síðan. Lengst af fæddu konur nefnilega börn í lóðréttri stöðu. Karlmenn breyttu því síðar í að konur lægju á bakinu.Vísir/Getty En hvers vegna fæða svona margar konur í dag liggjandi á bakinu? Í fyrrnefndri grein BBC ræðir við Janet Balaskast, sem er höfundur fjölda bóka um hvernig konur geta haft meiri stjórn á fæðingarupplifunum sínum og stofnandi Active Birth Centre í Bretlandi. Það skal því hafa í huga að sérfræðingurinn sem BBC byggir grein sína á er löngum þekktur aðili fyrir því að mæla með fæðingum þar sem konur velja mest sjálfar hvernig fæðingin fer fram. Það sem við ætlum hins vegar að gera er að rýna svolítið í þessa sögu og reyna að átta okkur á því hvernig það kom mögulega til að konur fóru að fæða börn á bakinu: Fyrir karlmenn. Í stuttu máli: Að fæða á bakinu er frekar ný hefð. Því þessi hefð fór ekki að festast í sessi fyrr en fyrir um 300–400 árum síðan. Sá sem mælti fyrir þessari líkamsstöðu var Frakkinn François Mauriceau sem taldi stöðuna þægilegri fyrir konur og hentugri fyrir karlkyns lækni sem væri viðstaddur fæðinguna, en á þessum tíma var þróunin svolítið í þá átt að ýta ljósmæðrum til hliðar og karlkyns skurðlæknar tóku við. Tekið skal fram að umræddur Mauriceau leit á meðgönguna sem sjúkdóm. Sumir fræðimenn vilja þó rekja breytinguna til Lúðvíks XIV konungs Frakklands. Því hann er sagður hafa haft mikla ánægju af því að horfa á fæðingar. Það sem pirraði hann sérstaklega var að sjá ekki nógu vel sjálfur, þegar kona fæddi barn á fæðingarstól. Konungurinn hvatti því til þess að konur lægju á bakinu, enda langtum betra sjónarhorn fyrir hann að fylgjast með. Lúðvíks XIV konungur Frakklands var uppi á sautjándu öld en hann er sagður hafa haft mikla ánægju af því að horfa á barnsfæðingar. Pirraðist þó ef hann sá ekki nógu vel og því fór það í taugarnar á honum þegar konur fæddu börn í fæðingarstól. Sem betur fer er aukin vitund á því á Vesturlöndum í dag að konur séu hvattar til að hreyfa sig og velja stöðu sem þeim líður best í.
Jafnréttismál Tengdar fréttir „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Formaður heilbrigðishóps Öryrkjabandalagsins segir að gera þurfi betur í að hlusta á konur sem leiti aðstoðar í heilbrigðiskerfinu. Líkamleg einkenni séu oftar en ekki fyrst talin tengjast þunglyndi eða kvíða og þá skorti rannsóknir sem miðaðar séu að konum. 4. apríl 2026 12:22 Ekki ólíklegt að gervigreindin mismuni konum og körlum Það kann að koma á óvart hversu mikil skekkja er enn í gögnum sem þó hafa veruleg áhrif á það hvernig vörur, þjónusta, stofnanir, vöruhönnun og fleira kemur við karla annars vegar og konur hins vegar. 20. apríl 2023 07:02 Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Það eru vægast sagt fróðlegt og gagnlegt að taka samtalið við Sigrúnu Þorsteinsdóttur barna- og heilsusálfræðing og doktor í heilsueflingu um matvendni barna. 14. desember 2025 08:00 Útivinnandi og valið barnleysi með hund að bætast við útivinnandi og valið barnleysi „Við veljum hund frekar en barn og hér eru ástæðurnar,“ segir í fyrirsögn Times í Bretlandi í vikunni (e. „We chose a dog over a baby. Here’s why“). Í greininni er ekki bara fjallað um hið hefðbundna DINK-parsamband, því nú er líka verið að tala um DINKwads. 8. janúar 2026 07:02 Þyrftum að vera jafn undirbúin og við erum sem unglingar á kynþroskaskeiði Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir hefur boðað framhaldsnámskeið fyrir Sterkari í seinni hálfleik; Blásið í glæður nýrra drauma heitir það en námskeiðið verður haldið þann 20.janúar næstkomandi. 17. desember 2023 08:01 Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Furðubandið sem tryllti netið Lífið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Tíska og hönnun Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Fleiri fréttir Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Edrú í sorg: Sonarmissir, á hnefanum og eiginkonan hættir að anda Rannsóknir: Foreldrar lítið upplýstir um hvernig notkun ungmenna er á gervigreindinni Sambúðarslit: Hægt að rukka fyrrverandi maka um skattaskuldir hins aðilans í mörg ár 50+: Leitin að ástinni ekki bara fyrir unga fólkið Draumalíf: Fékk Ísland á heilann átta ára Sjá meira
„Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Formaður heilbrigðishóps Öryrkjabandalagsins segir að gera þurfi betur í að hlusta á konur sem leiti aðstoðar í heilbrigðiskerfinu. Líkamleg einkenni séu oftar en ekki fyrst talin tengjast þunglyndi eða kvíða og þá skorti rannsóknir sem miðaðar séu að konum. 4. apríl 2026 12:22
Ekki ólíklegt að gervigreindin mismuni konum og körlum Það kann að koma á óvart hversu mikil skekkja er enn í gögnum sem þó hafa veruleg áhrif á það hvernig vörur, þjónusta, stofnanir, vöruhönnun og fleira kemur við karla annars vegar og konur hins vegar. 20. apríl 2023 07:02
Gömlu trixin úreld: Ekki pína í börn mat, múta, hóta eða uppnefna Það eru vægast sagt fróðlegt og gagnlegt að taka samtalið við Sigrúnu Þorsteinsdóttur barna- og heilsusálfræðing og doktor í heilsueflingu um matvendni barna. 14. desember 2025 08:00
Útivinnandi og valið barnleysi með hund að bætast við útivinnandi og valið barnleysi „Við veljum hund frekar en barn og hér eru ástæðurnar,“ segir í fyrirsögn Times í Bretlandi í vikunni (e. „We chose a dog over a baby. Here’s why“). Í greininni er ekki bara fjallað um hið hefðbundna DINK-parsamband, því nú er líka verið að tala um DINKwads. 8. janúar 2026 07:02
Þyrftum að vera jafn undirbúin og við erum sem unglingar á kynþroskaskeiði Dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir hefur boðað framhaldsnámskeið fyrir Sterkari í seinni hálfleik; Blásið í glæður nýrra drauma heitir það en námskeiðið verður haldið þann 20.janúar næstkomandi. 17. desember 2023 08:01