Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Kristján Már Unnarsson skrifar 8. apríl 2026 19:45 Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, er verðandi lögmaður Færeyja. Kringvarpið Samkomulag hefur náðst um myndun nýrrar þriggja flokka landsstjórnar í Færeyjum milli Fólkaflokksins, Sambandsflokksins og Javnaðarflokksins. Beinir Johannesen, formaður Fólkaflokksins, staðfesti í viðtali við Kringvarpið í dag að hann myndi leiða stjórnina og verða næsti lögmaður Færeyja.
Formenn flokkanna þriggja, þeir Beinir, Bárður á Steig Nielsen, formaður Sambandsflokksins, og Aksel V. Johannesen, formaður Javnaðarmannaflokksins, settust síðdegis til fundar til að leggja lokahönd á stjórnarsáttmála og skiptingu ráðuneyta. Þeir stefna að því að kynna nýju stjórnina á blaðamannafundi á morgun. Saman eru flokkarnir með 22 þingmenn af 33 á Lögþingi Færeyja. Frá Þórshöfn í Færeyjum. Aðsetur landsstjórnarinnar er í rauðu húsunum á Þinganesi.Egill Aðalsteinsson Þingkosningarnar fóru fram þann 26. mars síðastliðinn eftir að Aksel V. Johannesen, fráfrarandi lögmaður, sleit Lögþinginu óvænt þann 25. febrúar. Það var vegna ágreinings innan stjórnarinnar um kröfu eins stjórnarflokksins, Framsóknar, um að lagafrumvörp um Suðureyjargöng og hækkun eftirlaunaaldurs yrðu spyrt saman. Hér má sjá sjónvarpsfrétt Sýnar:
Færeyjar Kosningar í Færeyjum Tengdar fréttir Vill ljúka stjórnarmyndun í Færeyjum í næstu viku Viðræður um myndun nýrrar landsstjórnar í Færeyjum hófust í gær undir forystu Beinis Johannesen, formanns Fólkaflokksins, stærsta sigurvegara þingkosninganna. Beinir gæti orðið yngsti lögmaður Færeyja, aðeins 29 ára gamall. Færeyingar fengu einnig yngsta þingmann í sögu Lögþingsins, tvítuga konu. 31. mars 2026 23:10 Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið. 26. mars 2026 23:52 Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Um fimmtungur kjósenda hafði ekki gert upp hug sinn í síðustu skoðanakönnun sem var gerð fyrir kosningar til færeyska lögþingsins sem fara fram í dag. Færeyingar kusu sér fulltrúa á danska þinginu fyrr í vikunni. 26. mars 2026 10:21 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira
Vill ljúka stjórnarmyndun í Færeyjum í næstu viku Viðræður um myndun nýrrar landsstjórnar í Færeyjum hófust í gær undir forystu Beinis Johannesen, formanns Fólkaflokksins, stærsta sigurvegara þingkosninganna. Beinir gæti orðið yngsti lögmaður Færeyja, aðeins 29 ára gamall. Færeyingar fengu einnig yngsta þingmann í sögu Lögþingsins, tvítuga konu. 31. mars 2026 23:10
Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fólkaflokkurinn er að bæta verulega við sig fylgi í kosningunum sem fóru fram í Færeyjum í dag. Javnaðarflokkurinn, sem var sá stærsti, missir hins vegar töluvert fylgi og endar með þriðja stærsta þingflokkinn á Lögþingi Færeyja. Framsókn og Tjóðveldi, sem voru með Javnaðarflokknum í ríkisstjórn, missa einnig fylgi en þó lítið. 26. mars 2026 23:52
Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Um fimmtungur kjósenda hafði ekki gert upp hug sinn í síðustu skoðanakönnun sem var gerð fyrir kosningar til færeyska lögþingsins sem fara fram í dag. Færeyingar kusu sér fulltrúa á danska þinginu fyrr í vikunni. 26. mars 2026 10:21