„Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2026 12:24 Greg Norman fellur á hnén eftir að hann náði ekki að vippa ofan í á 15. holunni á Augusta National-vellinum á Masters-mótinu árið 1996. Hann þurfti á erni að halda til þess að eiga einhvern möguleika á sigri eftir að hann glutraði niður sex högga forystu sem hann hafði fyrir lokahringinn. Vísir/Getty Greg Norman, ástralski fyrrverandi atvinnukylfingurinn, er enn bitur út í Nick Faldo þrjátíu árum eftir að Norman glutraði niður sigri á Masters-mótinu á eftirminnilegan hátt. Hann segist enga virðingu bera fyrir Faldo.
Þrjátíu ár eru liðin frá því að Norman hóf lokahringinn á Masters-mótinu með sex högga forskot á Faldo, helsta keppinaut hans. Norman átti martraðarhring, spilaði á sex höggum yfir pari og endaði fimm höggum á eftir Faldo sem vann sinn þriðja og síðasta græna jakka. Faldo faðmaði Norman eftir að þeir luku leik og sagði honum að „láta ekki bastarðana ná til þín“. Nú þremur áratugum síðar gefur Norman ekki mikið fyrir það vinaþel Faldo ef marka má viðtal við hann í breska blaðinu Telegraph í vikunni. „Það hafði ekki mikla þýðingu fyrir mér því ég vissi að hann yrði strax aftur eins og hann var áður. Við áttum aldrei í neinu raunverulegu sambandi. Við vorum algerar andstæður. Hann var einfari, ég gæti ekki verið eins og hann,“ sagði Norman í viðtalinu en hann gekk undir viðurnefninu „Hákarlinn“ á sínum tíma. Gagnrýnin á LIV orsökin Óvild Normans virðist þó helst skýrast af gagnrýni Faldo á LIV-mótaröðina sem Norman tók þátt í að stofna og stýrði þar til í fyrra. „Við áttum okkur sögu, hann hefði getað hringt í mig og beðið mig um mína hlið á málinu og ég hefði fúslega sagt henni hana. Ef hann hefði samt verið ósammála þá hefði það verið í fínu lagi og honum hefði verið frjálst að segja það sem hann vildi,“ sagði Norman sem var afar herskár sem yfirmaður LIV í garð PGA-mótaraðarinnar og eigenda risamótanna í golfi. Nick Faldo faðmar Norman eftir að hann tryggði sér sigurinn á Masters árið 1996. Faldo var þekktur fyrir að vera fáskiptinn en hughreysti þó keppinaut sinn eftir hræðilegan lokahring.Vísir/EPA Sárnaði Norman að Faldo hefði farið niðrandi orðum um LIV. „Eins og ég segi, ég ber enga virðingu fyrir honum. Hann kemur enn með hluti sem eru áhugavert heimskulegir ef ég á að vera hreinskilinn,“ sagði Norman. Elskar enn Augusta Norman brenndi margar brýr að baki sér þegar hann tók þátt í að koma LIV á koppinn og með framferði sínu þar. Athygli vakti að þegar honum var ekki boðið á Masters fyrir tveimur árum keypti hann sig inn og fylgdi Rory McIlroy, sem hann hefur munnhöggist við opinberlega, eftir. Reyndi hann ítrekað að ná athygli McIlroy sem veitti honum hana ekki. Þrátt fyrir bitra reynslu af grátlegum ósigrum á Masters, bæði árið 1996 og árið 1987 þegar hann tapaði í bráðabana eftir frægt vipp Larry Mize, segist Norman elska Masters-mótið og að hann ætli að horfa á það í sjónvarpi í ár. „Við vitum hverju þessar seinni níu geta kastað upp. Þær köstuðu upp Hvíta hárkalinum mikla sjálfum að minnsta kosti þrisvar. Ég elska staðinn þrátt fyrir allt það sem hefur gerst. Hlutirnir gerast bara þar.“
Masters-mótið Golf LIV-mótaröðin Mest lesið Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Handbolti Aston Villa er Evrópudeildarmeistari Fótbolti Grét alla Reykjanesbrautina Körfubolti Tók upp kvenkyns leikmenn afklæðast í laumi og fær lífstíðarbann Fótbolti Hefnist fyrir klúðrið á Old Trafford Enski boltinn Fögnuðu fram á morgun: „Þeir hlæja ekki lengur“ Enski boltinn Sjáðu Englandsmeistara Arsenal tryllast af fögnuði Enski boltinn Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Handbolti „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Körfubolti Þór/KA - Breiðablik 1-3 | Blikar styrktu stöðu sína á toppnum Fótbolti Fleiri fréttir Þrjár frá Íslandi jafnar í þriðja sæti Rory reiður: „Grjóthaltu kjafti“ Fyrsti Englendingurinn til að vinna PGA í 107 ár Aron fagnaði sigri eftir bráðabana Aldrei unnið atvinnumannamót en er efstur fyrir lokahringinn á PGA „Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“ Svíinn sjóðheitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn „Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“ Biðst afsökunar á „óafsakanlegri hegðun“ „Við erum alltaf að gefa í“ „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið McIlroy klár þrátt fyrir sársauka „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Nær Spieth loksins að loka hringnum? Tveir Íslendingar á meðal fimm efstu í Danmörku Drifkrafturinn hjá McIlroy meiri eftir tímamótasigur Gunnlaugur mun aftur keppa á sterkasta áhugamannamóti í heimi DeChambeau mun einbeita sér að Youtube ef LIV verður að engu Golfsveifla Sigmundar Davíðs heldur hægri sinnuð Landsmót í golfhermi til lykta leitt á Sýn Sport Tilvistarkreppa LIV-mótaraðarinnar heldur áfram Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Tekur við sem fyrirliði í ljósi handtöku Tiger Woods DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Sjá meira