Allir og amma þeirra í bókaklúbb Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 11. apríl 2026 17:01 Anna Lea Friðriksdóttir, bóksali og útgefandi hjá Sölku og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda vísir Bóksali og útgefandi merkir ákveðna sprengingu í stofnun bókaklúbba upp á síðkastið. Það sé hennar tilfinning að fólk lesi meira og sækir ungt fólk í meira mæli en áður í bókabúðina.
Þetta segir Anna Lea Friðriksdóttir, bóksali og útgefandi hjá Sölku og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda. Hún stendur vaktina í bókabúð sinni á Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur á daginn og merkir ákveðna breytingu, þó að alltaf megi gera betur í þeim efnum. „Við finnum ákveðna bylgju eða eitthvað sem liggur í loftinu að fólk er að lesa meira og þá kannski sérstaklega unga fólkið okkar, það virðist vera að taka vel við sér.“ Sala á barnabókum með betra móti Það sé tilfinning hennar, sem stendur í bókabúð allan daginn, að börn og ungmenni á aldrinum sextán til tuttugu og fimm ára mæti í auknum mæli í bókabúðina. „Ef við erum að tala um fólk sem er sjálft að taka meðvitaða ákvörðun um að lesa fyrir sjálft sig. Meira stelpur en strákar. En svo er hitt sem við sjáum og það er að salan í barnabókum, hún hefur verið með betra móti upp á síðkastið.“ Allir og amma þeirra í bókaklúbb Aðspurð hvað valdi segir hún ákveðna vitundarvakningu í gangi þegar kemur að skjánotkun og segir hún að mögulega sé fólk að leita leiða til að kjarna sig og fá frí frá skjánum. Þau hjá Bókabúðinni Sölku taka á móti bókaklúbbum og merkir Anna Lea algjöra sprengju þegar kemur að þeim. „Oftast eru þeir kannski að hittast í heimahúsi og svo vilja þeir kannski breyta um umhverfi og jafnvel fá höfund til að koma í heimsókn og þá hafa þeir oft hist hér í búðinni og við sjáum algjöra sprengingu í því.“ Eru þá nýir hópar að sækja að til ykkar? „Já en að sama skapi þá eru þetta oftast konur. Ég man bara eftir einum bókaklúbbi sem hefur sett sig í samband við okkur þar sem eru karlar og það var mjög gaman að fá þá, þeir komu fyrir jólin. En konur eru sterkari þarna en við sjáum mikla aukningu í þessu.“
Bókmenntir Ástin og lífið Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira