Dagskráin: Geta Liverpool og Barcelona komið til baka í Meistaradeildinni? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. apríl 2026 06:02 Rio Ngumoha átti sinn þátt í báðum mörkum Liverpool um helgina þó sérstaklega fyrra markinu sem hann skoraði upp á sitt einsdæmi. Getty/Liverpool FC Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á þriðjudögum.
Nú er komið að úrslitastundu í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu en þá fara fram seinni leikirnir í tveimur af viðureignunum fjórum. Stórliðin Liverpool og Barcelona eru bæði tveimur mörkum undir eftir fyrri leikinn og Börsungar eru auk þess á útivelli. Liverpool nýtur góðs af því að vera að spila á Anfield eftir að hafa tapað 2-0 í fyrri leiknum á móti Paris-Saint Germain í París. Barcelona tapaði á sama tíma 2-0 á heimavelli á móti Atletico Madrid og heimsækir því lærisveina Diego Simeone á Metropolitano-leikvanginn. Upphitun fyrir leiki kvöldsins hefst klukkan 18.30 og eftir leikinn munu Meistaradeildarmörkin gera allt kvöldið upp eða frá klukkan 21.00. Það gæti auðvitað breyst eitthvað ef framlengingar fara að flækja málið. Grindavík og Stjarnan geta bæði tryggt sér sæti í undanúrslitum Bónusdeildar karla en þau eru bæði 2-1 yfir í einvígum sínum í átta liða úrslitunum. Mótherjar þeirra, Njarðvík og KR, búa að því að vera á heimavelli í kvöld og tryggja sér því oddaleik með sigri. Ef ekki þá eru þau á leiðinni í sumarfrí. Það má einnig sjá á KKÍ TV annan leik Fjölnis og Hamars/Þórs í baráttunni um laust sæti í Bónus-deild kvenna í körfubolta á næstu leiktíð. Hamar/Þór vann leik eitt en það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki verður í deild þeirra bestu 2026-27. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag. Sýn Sport Klukkan 18.30 hefst upphitun fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeildinni. Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Atletico Madrid og Barcelona í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Klukkan 21.00 hefjast Meistaradeildarmörkin þar sem farið verður yfir mörkin í leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni. SÝN Sport Ísland Klukkan 19.20 hefst bein útsending frá fjórða leik KR og Stjörnunnar í átta liða úrslitum í úrslitakeppni Bónusdeildar karla í körfubolta. SÝN Sport Ísland 2 Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá fjórða leik Njarðvíkur og Grindavíkur í átta liða úrslitum í úrslitakeppni Bónusdeildar karla í körfubolta. SÝN Sport Viaplay Klukkan 18.50 hefst bein útsending frá leik Liverpool og Paris-Saint Germain í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Klukkan 23.05 hefst bein útsending frá leik New York Islanders og Carolina Hurricanes í NHL-deildinni í íshokkí í Bandaríkjunum. KKÍ TV 1 Klukkan 19.15 hefst bein útsending frá öðrum leik Fjölnis og Hamars/Þórs í umspili um laust sæti í Bónusdeild kvenna í körfubolta 2026-27.
Dagskráin í dag Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Sjá meira