„Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. apríl 2026 11:15 Jóhanna Vilhjálms, Anna Björk Hilmars, Geir Sveinsson og Arnar Sveinn Geirsson á góðri stundu. Arnar Sveinn Geirsson sendi stjúpmóður sinni, Jóhönnu Vilhjálmsdóttur, hjartnæma kveðju í tilefni af átján ára sambandsafmæli þeirra á Facebook. Hann segist þakklátur fyrir að hafa fengið Jóhönnu inn í líf sitt, hún hafi aldrei reynt að koma í stað móður hans og kennt honum að hugsa sjálfstætt. „
Facebook var að segja mér að ég og Jóhanna Vilhjálmsdóttir ættum 18 ára vinaafmæli. Ætli það sé ekki bara svona sirka síðan Facebook byrjaði, en okkar samband varð til eitthvað fyrr. Þessi áminning frá Facebook fékk mig til að staldra við og hugsa út í þennan tíma. Og ég fylltist svo miklu þakklæti,“ skrifar Arnar Sveinn Geirsson, starfsmaður Teya og fyrrverandi fótboltamaður, í færslunni sem hann birti á Facebook í gær. „Jóhanna kemur inn í líf mitt á mjög erfiðum tíma. Bæði var þetta gríðarlega erfiður tími fyrir mig, en ekkert síður fyrir Jóhönnu. Ég var alveg staðráðinn í því að það væri sko enginn að fara að koma í stað mömmu, og ég lét Jóhönnu alveg finna fyrir því - ekki að hún hafi verið að reyna að gera það með neinu móti.“ Arnar Sveinn var aðeins ellefu ára þegar móðir hans Guðrún Arnarsdóttir lést árið 2003 eftir baráttu við krabbamein. Hann sagði sína sögu fyrir átta árum síðan í Ísland í dag. Faðir Arnars, Geir Sveinsson, kynntist fjölmiðlakonunni Jóhönnu Vilhjálmsdóttur árið 2004 og hófu þau samband, tóku að sér fósturdóttur og eignuðust tvo drengi saman. „Þetta voru sannarlega ekki einfaldar aðstæður að koma inn í. Hægt og rólega hleypti ég henni nær mér - enda fékk ég alltaf bara ást og kærleika frá henni. Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu. Hún kom inn sem jafningi, hefur leiðbeint þegar það hefur átt við - en líka hlustað þegar það hefur átt við. Hún gekk Ragnheiði Katrínu í móðurstað, kom með Önnu Björk inn í líf mitt, sem ég verð ævinlega þakklátur fyrir, og svo auðvitað bræður mína tvo sem hún eignaðist með pabba. Þvílík og önnur eins lukka,“ skrifar Arnar Sveinn í færslunni. Jóhanna Vilhjálms og Geir Sveins með Jóa í Múlakaffi á Þorrablóti Vals.Sigurjón Ragnar „Við Jóhanna erum stórir karakterar bæði tvö og finnst gaman að ræða málin. Oft sammála, stundum ósammála. Hún þorir að fara út fyrir boxið, út fyrir normið - og það er eitthvað sem ég hef lært af henni. Hvað það er mikilvægt að hugsa sjálfstætt. Sjá hluti frá fleiri sjónarhornum. Hún elskar fólkið sitt og vill allt fyrir það gera - og það finnur maður svo sannarlega. Þó að maður sé bara að koma í kvöldmat á venjulegum mánudegi að þá sér hún til þess að maður finni hvað henni þykir vænt um að maður kom,“ skrifar hann. „Ég er alveg ótrúlega þakklátur fyrir það að Jóhanna hafi komið inn í líf mitt og okkar. Það er svo ótrúlega margt jákvætt sem kom með henni. Ég hlakka til að halda áfram að rækta sambandið okkar, hlakka til að halda áfram að læra af henni og auðvitað að ræða heimsmálin. Takk fyrir allt.“
Fjölskyldumál Tímamót Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira