Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Árni Sæberg skrifar 14. apríl 2026 16:24 Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir eru bæði reynslumiklir borgarfulltrúar. Vísir/Bjarni Óháðu borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir hafa lagt til að þau verði áheyrnarfulltrúar í borgarráði, umhverfis- og skipulagsráði og forsætisnefnd borgarinnar. Það hefði í för með sér að laun Kjartans myndu hækka um 868 þúsund og laun Mörtu um 578 þúsund.
Kjartan og Marta voru kosin í borgarstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn en sögðu sig nýverið frá flokknum eftir að ekki var óskað eftir frekari kröftum þeirra í forystu borgarstjórnarflokksins. Þau tilkynntu síðar meir að þau væru gengin til liðs við Miðflokkinn. Þann 9. mars síðastliðinn tilkynntu þau forsætisnefnd Reykjavíkurborgar að þau hefðu stofnað borgarstjórnarflokk óháðra og mundu starfa innan hans út kjörtímabilið, ásamt varaborgarfulltrúanum Helga Áss Grétarssyni, sem einnig var kjörinn fyrir Sjálfstæðisflokk. Nokkrum dögum síðar samþykkti meiri hluti borgarstjórnar tillögu Sjálfstæðisflokksins um að fjarlægja Kjartan og Mörtu úr nefndum og ráðum borgarinnar. Helgi Áss hafði sömuleiðis hlotið sömu örlög áður. Laun skerðast um helming Þetta gerði það að verkum að kjör þeirra skertust verulega en samkvæmt samþykkt um kjör og starfsaðstöðu kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg skulu borgarfulltrúar að jafnaði sitja í að minnsta kosti einni nefnd í flokki I og þá sé bæði átt við setu sem kjörinn fulltrúi og áheyrnarfulltrúi. Sitji borgarfulltrúi ekki í nefnd í flokki I skuli hann sitja í nefnd í flokki II. Sitji borgarfulltrúi hvorki í nefnd í flokki I né flokki II skerðist grunnlaun hans um helming. Sitji borgarfulltrúi ekki í nefnd í flokki I skerðist grunnlaun hans um 25 prósent nema hann sitji í tveimur nefndum í flokki II og/eða III. Þannig nema laun þeirra Kjartans og Mörtu nú hálfum borgarstjórnarlaunum, 578 þúsund krónum, auk fast starfskostnaðar upp á 84 þúsund krónur eða alls 662 þúsund krónum. Eða hvað? Á borgarstjórnarfundi dagsins, sem hófst klukkan 12, liggja fyrir þónokkrar tillögur frá þeim Kjartani og Mörtu, þar á meðal þrjár þar sem lagt er til að þau verði áheyrnarfulltrúar í nefndum og ráðum borgarinnar. „Við undirritaðir borgarfulltrúar höfum stofnað borgarstjórnarflokk óháðra og munum starfa innan hans út kjörtímabilið í samræmi við tilkynningu okkar til forsætisnefndar 9. mars 2026. Við leggjum því til að borgarstjórn samþykki að við fáum að tilnefna áheyrnarfulltrúa í borgarráð í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar,“ segir í tillögu þeirra um að fá áheyrn í borgarráði. Samkvæmt henni yrði Kjartan áheyrnarfulltrúi og Marta varaáheyrnarfulltrúi. Hinar tvær tillögurnar varða umhverfis- og skipulagsráð og forsætisnefnd. Samkvæmt þeim yrði Marta áheyrnarfulltrúi og Kjartan varaáheyrnarfulltrúi. Verði tillögurnar samþykktar munu þau bæði njóta fullra borgarfulltrúalauna auk kostnaðar, alls 1,25 milljóna króna. Í ofanálag við það fengi Kjartan 25 prósenta álag sem áheyrnarfulltrúi í borgarráði og fengi því alls 1,53 milljónir króna. Þannig myndu laun Mörtu hækka um 578 þúsund og Kjartans um 868 þúsund. Hefur legið fyrir Kjartan greindi þegar frá því þegar þau stofnuðu borgarstjórnarflokk óháðra að þau myndu óska eftir því að verða áheyrnafulltrúar, enda væri hefð fyrir slíku. „Við höldum áfram að leggja fram tillögur í ráðum og nefndum og munum óska eftir að fá áheyrnaraðild í nokkrum nefndum eins og dæmi eru um. Þar getum við haldið áfram okkar málflutningi,“ sagði hann.
Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að vitnisburði sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Sjá meira