Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 24. apríl 2026 10:34 Seltjörn er á Seltjarnarnesi. Vísir/Vilhelm Eftir að Seltjarnarnesbær sagði upp dagdvalarsamningi við Vigdísarholt, sem sér um dagdvalar- og hjúkrunarrýmisþjónustu á Seltjörn, bíða forsvarsmenn eftir svörum frá bænum um hver taki við í lok árs. Mikil samlegð sé á milli dagdvalarinnar og hjúkrunarheimilisins svo staða þess síðarnefnda verður metin. Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar ítrekar að ekkert rof verði á þjónustunni. „
Seltjarnarnesbær sagði upp samningi við Vigdísarholt, sem rekur heimilið, um rekstur svokallaðrar dagdvalarþjónustu,“ segir Steingrímur Ari Arason, stjórnarformaður Vigdísarholts. Árið 2019 var húsnæði Seltjarnar tekið til notkunar og tók Vigdísarholt við rekstri hjúkrunarheimilis og dagdvalarþjónustu. Alls eru fjörutíu íbúar á hjúkrunarheimilinu en 24 dagdvalarpláss. Fjórum árum síðar seldi bærinn húsnæðið en leigði áfram út hluta þess fyrir dagdvalarplássin. „Vigdísarholt hefur leigt og leigir af þessu félagi húsnæðið sem hjúkrunarrýmisþjónstunan er veitt í en húsnæðið sem þessi dagdvalarþjónusta er í er annað en Seltjarnarnesbær leigir það húsnæði þrátt fyrir söluna. Bærinn fól Vigdísarholti að veita þessa þjónustu áfram,“ segir Steingrímur. „Þetta er þjónusta sem hefur verið eftirspurð og við höfum verið mjög stolt af.“ Þann 5. desember veitti bæjarráð Þóri Sigurgeirssyni, bæjarstjóra Seltjarnarnesbæjar, leyfi til að segja upp samningi við Vigdísarholt „ef þurfa þyki“ líkt og segir í fundargerð bæjarráðs. Samningnum var sagt upp í desember og tekur hann gildi í lok ársins 2026. „Til að gera langa sögu stutta þá í desember segir Seltjarnarnesbær upp þessum samningi um dagdvalarþjónustuna og það er þá tvennt, annars vegar að afturkalla þetta umboð sem okkur var falið til að veita þjónustuna og afnot af húsnæðinu,“ segir Steingrímur. „Seltjarnarnesbær segir upp samningnum vegna óánægju með kostnað vegna húsnæðisins og vill meina að hluti af daggjaldi sem við eigum að fá eigi að standa undir kostnaði sveitarfélagsins því það er að leigja húsnæðið fyrir okkur. Við sögðum að það væri ekki í samræmi við samninginn.“ Engin ákvörðun tekin um rekstur hjúkrunarrýmisins „Þeir segja samningnum og húsnæðinu upp með árs fyrirvara þannig að það er í rauninni allt óbreytt fram að næstu áramótum en við höfum svarað því að í rauninni séum við tilbúin að gera allt sem hægt er til að tryggja að það verði ekkert rof í þjónustunni og gera allt sem hægt er að það sé hægt að yfirfæra þjónustuna til sveitarfélagsins,“ segir Steingrímur. Ekki hafi verið gefin upp ástæða fyrir því að samningnum var sagt upp og segist Steingrímur ekki vita hvað bærinn stefni á að gera varðandi starfsemina. Gengið er út frá því að bærinn taki við dagdvalarþjónustunni og mun stjórn Vigdísarholts meta hvaða áhrif það kann að hafa á hjúkrunarrýmisþjónustuna. „Við erum ekki búin að taka neinar ákvarðanir varðandi hana.“ Steingrímur segir að mikil samlegð sé á milli hjúkrunarrýmisins og dagdvalarrýmisins. „Starfsmenn nýtast að einhverju marki og þetta framboðsmat og ýmislegt gerir það að verkum að það er hagkvæmt að veita þessar þjónustur hlið við hlið. Þannig að ef við ætlum að hætta að veita dagdvalarþjónustuna mun það hafa áhrif á afkomuna hjá okkur og við verðum að skoða það í rólegheitum. Það verður alltaf út frá því gengið að jafnvel þótt við myndum hætta myndu hvorki starfsmenn ná heimilismenn finna fyrir því,“ segir hann. Þau bíði eftir því að sveitarfélagið sýni á spilin en eftir því sem líður á árið verður Steingrímur óþreyjufullari. „Við erum búin að vera að veita þessa þjónustu frá 2019 og ég held að það séu allir sammála um að það hafi tekist vel til og fólk kunni að meta hana. Þetta er náttúrulega nærþjónusta sem eldri borgarar á Seltjarnarnesi hafa kunnað að meta og hefur að okkar viti gengið vel svo okkur þykir þessi staða auðvitað slæm,“ segir Steingrímur. Verði aldrei rof á þjónustunni Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar, segir mál dagdvalarinnar vera til skoðunar hjá bænum. Hinir ýmsu aðilar sem komi að málinu séu að ræða hvernig best sé að hátta málunum. „Hvernig sem þetta er verður aldrei neitt rof á þjónustunni,“ segir Þór. Engin formleg ákvörðun hefur verið tekin hvað varðar dagdvalarþjónustuna.
Seltjarnarnes Hjúkrunarheimili Heilbrigðismál Mest lesið Repúblikanar unnu kjördæmastríðið Erlent Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Innlent Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Innlent Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Innlent Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Innlent Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Innlent Segir Kúbu næsta á eftir Íran Erlent „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Erlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Innlent Fleiri fréttir Óvenjulegt fley undan ströndum Reykjavíkur Með um 2,8 milljónir í laun sem bæjarstjóri Kjarnorkuknúinn kafbátur í þjónustuheimsókn Ákvörðun innviðaráðherra beri vott um „ákveðið skeytingarleysi“ Íbúi á höfuðborgarsvæðinu kærður fyrir að „misþyrma“ gæludýrinu sínu Nýr bæjarstjóri fær rúmar 2,5 milljónir á mánuði Íslenskur ofurjeppi á leið í framleiðslu Dró til sín fé sem gjaldkeri framboðsins Reyndist fangi undir rafrænu eftirliti Hundruð sitja um störfin, íslenskur bíll og Hildur Guðna í beinni Segir ekkert eiga að koma í veg fyrir að Airbus noti Reykjavík Rannsaka líkamsárás gegn unglingsstúlku Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu Mótmæli við Austurvöll Vill leysa flöskuhálsinn í raforkumálum Vestfjarða með lagabreytingu Hátt á þriðju milljón á mánuði Án ökuréttinda og óhæfur til aksturs þegar banaslysið varð Livio skylt að greiða Ingunni 25 milljónir Lækka bílastæðagjöld við Seljalandsfoss Mótmælendur í Skuggasundi fá ekki krónu Sættust um bikbreiðuna Búvörusamningar framlengdir um ár Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys á Lækjargötu Of seint að Jónas fái að hvíla í friði Manndrápstilraun í bílakjallara á borði héraðssaksóknara Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð „Ávallt komið skýrt fram“ að ekki sé um að ræða fasta búsetu „Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Þingmenn sem hætta og hagræðing í skötulíki „Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu“ Sjá meira