Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Birgir Olgeirsson skrifar 16. apríl 2026 18:32 Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Ívar Fannar Stórfellt smyglmál um borð í Dettifossi er talið geta haft veruleg áhrif á fíkniefnamarkaðinn hér á landi, að sögn lögreglu. Lagt var hald á rúmlega 14 lítra af amfetamínbasa og þrír sitja í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar á meðal tveir starfsmenn Eimskips sem hafa ekki áður komið við sögu lögreglu.
Lögregla lagði hald á efnin um borð í gámaflutningaskipi Eimskips á mánudag. Alls voru sex handteknir vegna málsins. Þremur var síðar sleppt úr haldi en þrír voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald. „Það eru rúmlega 14 lítrar af amfetamínbasa," segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Amfetamínbasi er yfirleitt notaður til að framleiða amfetamín, en ekki er hægt að áætla nákvæmlega hversu mikið magn 14 lítrar myndu skila án þess að vita styrkleika efnisins, sem liggur ekki fyrir. Í Saltdreifaramálinu taldi lögregla að 40 lítrar af amfetamínbasa gætu skilað 170 kílóum til dreifingar. Haldlagning af þessari stærðargráðu mun því líklega valda skorti og hækka verð. „Þetta klárlega mun skapa þau áhrif að það verður takmörkun á framboði á þessu efni," segir Ævar Pálmi. Starfsmennirnir tveir hjá Eimskip, sem nú sæta vikulöngu gæsluvarðhaldi, hafa ekki áður ratað á borð lögreglu. „Þessir tveir hásetar eða starfsmenn Eimskips eru óskrifuð blöð hjá lögreglunni, ekki þekktir brotamenn.“ Rannsókn málsins er enn á viðkvæmu stigi. Lögregla vill því hvorki greina frá því hvar efnin fundust um borð í skipinu né hversu sterkt efnið reyndist við fyrstu skoðun. „Staðan er bara alveg ágæt. Rannsókn miðar ágætlega en eins og ég hef sagt áður þá er þetta svona á viðkvæmu stigi.“ Starfsmenn Eimskips sem eru í gæsluvarðhaldi hafa ekki áður komið við sögu lögreglu. Vísir/Vilhelm Þrátt fyrir umfang málsins var skipið ekki kyrrsett. Það var mat lögreglu á þessum tímapunkti að ekki væri tilefni til þess miðað við þær upplýsingar sem þá lágu fyrir. „Við mátum það á þessu stigi út frá því sem við höfðum að það væri engin ástæða til þess.“ Málið teygir sig jafnframt út fyrir Ísland. Dettifoss var að koma frá Evrópu og því beinist rannsóknin ekki aðeins að því sem gerðist hér á landi heldur einnig að mögulegum tengingum erlendis. „Skipið var að koma frá Evrópu. Þannig að við erum að vinna þetta líka með, og munum vinna þetta með löggæsluyfirvöldum þar.“ Að aðgerðinni komu lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, tollgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra. Ævar Pálmi segir samvinnu þessara aðila hafa gert það mögulegt að leggja hald á efnið og bregðast hratt við.
Lögreglumál Fíkniefnabrot Fíkniefnasmygl með Dettifossi Smygl Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Fleiri fréttir Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Sjá meira