Síðasti lærlingur Rakmaninoff látinn Jón Þór Stefánsson skrifar 23. apríl 2026 18:40 Ruth Slenczynska árið 1957. Getty Píanóleikarinn Ruth Slenczynska er látin, 101 árs að aldri, að loknum glæstum ferli sem spannaði níu áratugi.
Hún var eini eftirlifandi nemi rússnesku píanógoðsagnarinnar Sergei Rakmaninoff, sem lést í Bandaríkjunum 1943. Sjálf fæddist Slenczynska í Kaliforníu árið 1925. Snemma varð ljóst að þarna væri um mikið efni að ræða, en hún spilaði í fyrsta skipti með sinfoníuhljómsveit einungis sjö ára gömul í París. Talað var um að hún væri eitt mesta tónlistarundur síðan Mozart kom fram á sjónarsviðið. Slenczynska kynntist Rakmaninoff árið 1934, en þá þurfti hún að hlaupa í skarðið fyrir hann. „Herra Rakmaninoff þurfti að aflýsa vegna verks í olnboganum,“ greindi hún síðar frá. „Tónleikahaldarinn vildi ekki tapa pening svo hann hafði samband við föður minn til að sjá hvort ég myndi vilja spila á tónleikunum.“ Skömmu síðar fékk hún að heimsækja meistarann og urðu þau tvö vinir. Hún mun oft hafa borið hálsmenn sem hann gaf henni. Sergei Rakmaninoff þykir einn merkasti píanóleikari allra tíma.Getty Faðir Slenczynsku, Josef Slenczynski, er lýst sem harðstjóra. Sjálfur var hann þekktur fiðluleikari, en ferill hans tók enda þegar hann særðist í fyrri heimsstyrjöldinni. Hann á að hafa sagt örskömmu eftir að dóttir hans fæddist að þarna væri annað hvort fiðlu- eða píanóleikari. Hún lýsti honum í sjálfsævisögu sem var gefin út árið 1957 og bar titilinn Forbidden Childhood. Þar sagði hún að á barnsaldri hafi hún verið látin æfa sig í níu klukkustundir á dag, og það á hverjum degi. Þegar hún hafi viljað leika sér hafi hann meinað henni það, og útskýrt að slíkt væri fyrir börn. Hún væri ekki barn, heldur tónlistarmaður. Fimmtán ára gömul sleit Slenczynska á öll tengsl við föður sinn, hætti á tónleikaferðalögum og fór í háskólanám. Hún lærði sálfræði við Kaliforníuháskóla. Hún sneri þó aftur í tónlistina um áratug síðar, og átti, líkt og áður segir, glæstan feril.
Andlát Tónlist Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira