Kempur reyna fyrir sér í fyrsta mílu-hlaupinu Boði Logason skrifar 27. apríl 2026 12:17 Öll stærstu nöfnin í hlaupaheiminum á Íslandi ætla að reyna fyrir sér í Vecct-Mílunni sem fer fram annað kvöld og verður í beinni útsendingu á Vísi. Samsett Á morgun verður brotið blað í íslenskri hlaupasögu þegar fyrsta Íslandsmeistaramótið í götumílu fer fram á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Keppnin, sem ber heitið Vecct Mílan, verður í beinni útsendingu á Vísi.
Í tilkynningu segir að um sé að ræða vottað götuhlaup samkvæmt reglum World Athletics og er þetta í fyrsta sinn sem slík keppni í mílu er haldin hér á landi. Keppnin fer fram á sérhannaðri braut í Hafnarfirði sem uppfyllir alþjóðleg viðmið. Hlaupin verður ein míla, eða 1.609 metrar, á malbiki og er brautin bæði hröð og marflöt. Hringurinn er 1.119 metrar, þar sem hlaupnir eru tveir 490 metra beinir kaflar. Keppnin snýst um að hlaupa míluna á sem stystum tíma. Vísir hefur síðustu vikur sýnt heimildarþætti um míluna sem má horfa á hér fyrir neðan. Hlaupið verður ræst í þremur hollum. Fyrst fer fram opinn flokkur þar sem allir geta tekið þátt án tímalágmarka. Þar fá þátttakendur vottaðan tíma og keppt er um verðlaun í karla- og kvennaflokki. Að því loknu taka við elítuhlaup karla og kvenna þar sem keppt verður um Íslandsmeistaratitla í götumílu. Í elítuflokkum er umsóknarskylda og stuðst við viðmiðunartíma í greinum á borð við 800 metra, 1.500 metra og lengri vegalengdir. Meðal keppenda eru nokkur af fremstu hlaupurum landsins, þar á meðal Baldvin Þór Magnússon, sem stefnir á að verða fyrstur til að hlaupa míluna undir fjórum mínútum á íslenskri grundu. Þá taka einnig þátt Aníta Hinriksdóttir, Andrea Kolbeinsdóttir, Elísa Kristinsdóttir og Þorsteinn Roy. Sýnt verður beint frá hlaupinum í öllum flokkum á Vísi. Útsendingin hefst klukkan 19:00 annað kvöld.
Hlaup Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Sjá meira