Samstarf

Ís­land ekki jaðarmarkaður segir fram­kvæmda­stjóri BMW

BL
„Að mínu mati er Ísland í fararbroddi þegar kemur að rafbílavæðingu,"  segir Paul De Courtois en hann ber ábyrgð á 45 ólíkum markaðssvæðum hjá BMW sem spanna Afríku til Austur-Evrópu og fleiri lönd, þar á meðal Ísland.
„Að mínu mati er Ísland í fararbroddi þegar kemur að rafbílavæðingu,"  segir Paul De Courtois en hann ber ábyrgð á 45 ólíkum markaðssvæðum hjá BMW sem spanna Afríku til Austur-Evrópu og fleiri lönd, þar á meðal Ísland. Vilhelm

Hrein orka, hröð rafbílavæðing og neytendur sem fylgjast vel með tækninýjungum gera Ísland að áhugaverðum markaði bílaframleiðenda. Þetta segir Paul de Courtois, framkvæmdastjóri hjá BMW Group en hann var staddur hér á landi á dögunum.

Nýr BMW iX3 frumsýndur á Íslandi

Heimsókn Paul de Courtois tengdist meðal annars kynningu á nýjum BMW iX3, rafjeppa sem var frumsýndur hér á landi á fjölsóttum viðburði í Hörpu á dögunum. iX3 er sá fyrsti sem byggir á nýjum rafbílagrunni BMW, Neue Klasse, og er sagður marka nýtt upphaf.

„iX3 markar nýjan kafla í sögu BMW. Að því sögðu erum við ekki að stíga okkar fyrstu skref í rafbílaheiminum heldur byggir þessi bíll á sjöttu kynslóð rafdrifs frá BMW,“ segir Paul. „Það hafa verið gerðar miklar breytingar og úrbætur frá fyrri kynslóð, sem var á þeim tíma þegar mjög skilvirk, og á bak við iX3 liggur margra ára þróunarvinna og miklar tækniframfarir." 

iX3 býður upp á allt að 805 kílómetra drægni samkvæmt WLTP-staðli og 800 volta hleðslukerfi, sem gerir hraðhleðslu mun skilvirkari.  iX3 er ekki aðeins rafbíll heldur í heildina hátæknivæddur bíll með nýrri hönnun og á að skila enn betri akstursupplifun.

Heitið Neue Klasse er ekki valið af handahófi. Það vísar til sögulegrar línu BMW frá sjöunda áratugnum sem margir telja hafa lagt grunn að nútímaímynd fyrirtækisins. „Þetta er tenging við eitt mikilvægasta tímabil í sögu BMW,“ segir Paul. 

Ísland í fararbroddi þegar kemur að rafvæðingu 

Paul De Courtois ber ábyrgð á 45 ólíkum markaðssvæðum hjá BMW sem spanna Afríku, Austur-Evrópu og fleiri lönd, þar á meðal Ísland. Hann segir íslenska markaðinn ekki jaðarmarkað í augum BMW þó smár sé í alþjóðlegum samanburði. Þvert á móti sé hér að finna aðstæður sem geri Ísland afar áhugavert fyrir alþjóðlegt bílafyrirtæki.

„Að mínu mati er Ísland í fararbroddi þegar kemur að rafbílavæðingu og innleiðingu hreinna rafbíla. Ísland er líklega það land sem hefur hreinustu orkuna í heiminum og mögulega allt að því ótakmarkaðan orkugjafa.“ 

„Ég tel það skynsamlega stefnu að ýta undir rafvæðinguna og bæði hagkvæmt fyrir landið og í samræmi við þarfir neytenda. Það gerir markaðinn einnig sérstakan að þið eruð eyja sem þýðir að bílar haldast að mestu innanlads og flæði bíla til og frá landinu er minna en víða annarsstaðar. Það hefur áhrif á allt, frá þjónustu og endursölu, til innviða og orkuskipta,“ segir Paul.

Þá bendir hann á að markaðurinn hér sé  sveiflukenndur. Efnahagslegar breytingar og pólitískar ákvarðanir geti haft hröð áhrif á eftirspurn og því þurfi framleiðendur og innflutningsaðilar að búa yfir seiglu og aðlögunarhæfni. BMW hefur verið með samfellda viðveru á Íslandi í þrjá áratugi og það segir hann skipta miklu máli þegar kemur að trausti og uppbyggingu vörumerkis.

„Það skiptir máli að hafa skuldbundna samstarfsaðila eins og BL sem skilja þróun og framvindu BMW og tryggja að bílarnir sem við erum að kynna passi við kröfur viðskiptavina í landinu. En Ísland er mjög áhugavert frá þessu sjónarhorni, markaðurinn er þroskaður, við sjáum það á tölunum.“

Þótt Paul tali af mikilli sannfæringu um rafbílavæðingu og iX3 ekur hann sjálfur ekki rafbíl. „Reyndar ekki akkúrat núna, ég ek um á BMW M3 Touring. Það er magnaður sportbíll og frábært að keyra hann,“ segir hann hlæjandi. „En ég er líka svo heppinn að vera í þeirri aðstöðu að geta skipt oft um bíla.“

Paul hóf störf árið 1997 hjá BMW. „Ég man vel eftir fyrsta deginum mínum. Ég fékk nefnilega að velja mér nýjan BMW sem vinnubíl."Vilhelm

Fékk nýjan BMW fyrsta daginn í vinnunni

Paul er reynslumikill stjórnandi innan fyrirtækisins en hann hefur starfað hjá BMW Group í nærri þrjá áratugi. Hann hóf feril sinn árið 1997 í heimalandi sínu Frakklandi og hefur síðan gegnt fjölbreyttum stjórnunarstörfum innan fyrirtækisins víða um heim.

„Ég man vel eftir fyrsta deginum mínum. Ég fékk nefnilega að velja mér nýjan BMW sem vinnubíl. Það var líklega besta leiðin til að ná manni inn og tryggja að maður yrði áfram,“ segir hann sposkur. „Fyrstu árin var ég úti á vettvangi og vann með bílasölum og umboðsaðilum og kynntist kröfum viðskiptavina frá fyrstu hendi. Það var mjög áhugavert og ég byggi á þeim grunni,“ rifjar hann upp.

Eftir nokkur ár flutti hann til Þýskalands og starfaði í höfuðstöðvum BMW. Þaðan fékk hann tækifæri til að leiða teymi í Ungverjalandi, síðar í Póllandi og svo í Singapúr þar sem hann hafði yfirumsjón með Suðaustur-Asíumarkaði. Síðar sneri hann aftur til Evrópu og stýrði starfsemi BMW í Sviss áður en hann tók við núverandi starfi hjá BMW Group í Munchen.

Skilningur á landi og þjóð lykillinn að markaðnum

Hann segir langan og farsælan feril hafa kennt sér að góð stjórnun byggist ekki aðeins á tölum. Skilningur á fólki og menningu skipti máli til að skilja markaðinn.  Áskoranirnar geta verið ólíkar. Til dæmis hafi þurft að endurhugsa alla nálgun eftir fjármálakreppuna 2008 þar sem þær aðferðir sem notaðar voru í rekstri og viðskiptum virkuðu ekki lengur. Þá þurfti að taka erfiðar ákvarðanir og laga sig að nýjum veruleika.

Í dag segir hann stærstu breytinguna felast í auknu valfrelsi neytenda sem sé jafnframt áskorun fyrir framleiðendur. Sama bílgerð geti eftir aðstæðum verið í boði sem rafbíll, tengiltvinnbíll, bensínbíll eða dísilbíll, eftir þörfum hvers markaðar. Þetta sýni hvernig fyrirtækið reynir að mæta ólíkum aðstæðum í mismunandi löndum þar sem innviðir, skattkerfi og reglugerðir eru ekki alls staðar eins. Enda  segir hann aðlögunarhæfni lykilorð þegar kemur að velgengni bílaframleiðenda í dag.

Örar breytingar framundan

Paul segir bílaiðnaðinn standa á tímamótum þar sem ör þróun, tæknibreytingar og breyttar væntingar neytenda kalla á hraðari viðbrögð en áður. Fyrirtæki sem nái ekki að bregðast við og hlaupa hratt muni eiga erfitt uppdráttar.

„BMW Group hefur verið farsælt fyrirtæki í meira en hundrað ár og við viljum halda áfram á þeirri braut,“ segir hann. 

„Viðskiptavinir okkar meta að sjálfsögðu þann árangur og þann stöðugleika sem vörumerkið BMW stendur fyrir en á sama tíma verðum við að vera sveigjanleg og fær um að mæta nýjum og auknum kröfum. Aðlögunarhæfni er lykilorð í þessum bransa.“

Þegar hann er spurður hverju hann sé stoltastur af á eigin ferli nefnir hann ekki einstök afrek eða verkefni í vinnunni, heldur það að hafa verið tilbúinn að byrja upp á nýtt aftur og aftur.

„Ég er mjög þakklátur fyrirtækinu fyrir að hafa gefið mér tækifæri til að vaxa innan þess en á sama tíma kynnast ólíkum löndum og menningarheimum. Það er líklega stærsti lærdómurinn. Í hvert skipti sem maður flytur í nýtt land tekur maður áhættu. Þú skilur eftir það sem þú þekkir og þarft að byggja upp nýtt líf, læra nýja hluti og tileinka þér þá til að reynslan nýtist þér á næsta stað. Tíminn í Suðaustur Asíu opnaði augun mín enn frekar fyrir heiminum. Evrópa hefur margt að bjóða og margt nýtt að uppgötva en í Asíu upplifði ég allt aðra heimsálfu og nýja sýn bæði á lífið og á viðskipti.“

„Það skiptir máli að hafa skuldbundna fjárfesta og samstarfsaðila sem skilja þróun og framvindu vörumerkjanna," segir Paul. BMW hefur haft umboðsaðila á Íslandi í þrjátíu ár.Vilhelm

Sagnfræði og ævintýri halda honum á jörðinni

Starf Paul de Courtois er krefjandi. Dagarnir einkennast af fundum og samskiptum við ólíka markaði og ferðalög heimsálfa á milli. Að hans mati er ein stærsta áskorun vinnandi fólks í dag að fínstilla samband vinnu og einkalífs.

„Í starfi eins og mínu getur starfsævin teygt sig yfir 40 ár. Þá er það nauðsynlegt, ef einn þáttur lífsins fer úr skorðum, heilsa, andleg heilsa, vinnan eða einkalífið þá virka hinir ekki rétt. Mjög snemma á ferlinum vissi ég að ég vildi fá tækifæri til að starfa erlendis og það hefur líklega komið í veg fyrir að mér leiddist í vinnunni. Mér finnst gaman að endurskapa sjálfan mig og takast á við nýjar áskoranir."

Til að núllstilla sig leitar Paul í bækur og notar gjarnan tímann í flugi milli landa til að lesa. „Ég sæki mikið í sagnfræðilegt efni en líka sögur og ævintýri. Það er gott að geta sleppt huganum frá daglegum skyldum og sökkt sér ofan í góða sögu. Ísland er bókmenntaland, hér eru án efa margar sögur sem ég þarf að uppgötva," segir Paul.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×