„Aldrei verið sópað áður og ég ætlaði ekki að byrja á því í kvöld“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 27. apríl 2026 21:43 Brittany Dinkins var frábær í liði Njarðvíkur Hulda/Vísir Njarðvík minnkaði muninn í einvígi sínu gegn Grindavík í 2-1 með frábærum sex stiga sigri 94-88 í IceMar-höllinni í kvöld. Brittany Dinkins var að vanda áberandi í liði Njarðvíkur og ræddi hún við Vísi eftir leik. „
Mér hefur aldrei verið sópað áður og ég ætlaði ekki að byrja á því í kvöld“ sagði Brittany Dinkins eftir sigurinn í kvöld. „Persónulega þá elska ég leik þrjú hvort sem ég sé að loka seríunni eða að halda mér á lífi“ Það var frábær orka í liði Njarðvíkur í kvöld og var Brittany Dinkins á því að það væri helsti munurinn á liðunum í kvöld. „Orkan okkar. Hvernig við komum til leiks og hvernig við undirbjuggum okkur. Við höfum verið smá slakar en góður undirbúningu, mikil orka og við höfum verið í þessari stöðu áður“ „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem að við höfum verið undir 0-2 svo við vitum hvað þarf og útaf því þá höfum við reynslu og við erum með hugarfarið og viljan sem við sýndum í dag“ Njarðvík byrjaði leikinn virkilega vel og voru aldrei undir í kvöld. Þær fundu snemma að þær væru að hitta á daginn sinn. „Við fundum það á æfingu í gær ef ég á að vera hreinskilinn“ Fyrsti sigur Njarðvíkur í seríunni staðreynd og þær eru komnar með blóð á tennurnar. „Liðið ræddi saman og við stærum okkur af því að vera veiðimaðurinn en ekki bráðin og í kvöld þá fórum við á veiðar“ Njarðvík mætir til Grindavíkur á föstudaginn kemur í leik fjögur en við hverju má búast við í þeim leik? „Ég á von á því að þær mæti með krafti því þær eru bara einum leik frá þessu svo ég á von á meiri grimmd og við þurfum að vera beittar og við þurfum að mæta með sömu orku eða bæta bara í“ „Við þurfum að vera trú okkar gildum og hvað við gerðum í dag til að vinna“ Brittany Dinkins vonast til þess að sjá sem flesta í grænu í stúkunni á föstudaginn. „Það er mjög mikilvægt og þið verðið að mæta í grænu og hvítu til að styðja okkur. Þetta verður skemmtilegt“ sagði Brittany Dinkins að lokum.
UMF Njarðvík Körfubolti Bónus-deild kvenna Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Sjá meira