Landsmót í golfhermi til lykta leitt á Sýn Sport Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 11:48 Axel Bóasson leiðir Íslandsmót innanhúss í golfi fyrir lokahringinn sem leikinn verður í dag. Kylfingur.is Landsmóti Íslands í golfhermum klárast með lokahring mótsins í kvöld. Þau Axel Bóasson og Heiðrún Hlynsdóttir leiða mótið fyrir lokahringinn sem klárast í kvöld.
Golfvellir landsins fara að opna einn af öðrum næstu vikur og spennan mikil fyrir golfsumrinu. Margur hefur þurft að gera sér golfherma að góðu yfir vetrarmánuðina og fremstu kylfingar landsins þar ekki undanskildir. Íslandsmót innanhúss í golfi hefur staðið yfir síðustu tvær vikur og verður leitt til lykta í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 3 í kvöld. Annarri umferð mótsins lauk mánudaginn 27. apríl síðastliðinn en mótið er leikið á tölvugerðri útgáfu Korpúlfsstaðavöll, hvar Íslandsmótið í golfi fer fram í sumar. Axel Bóasson leiðir mótið í karlaflokki, að stórum hluta þökk sé stórkostlegum fyrsta hring þar sem hann lék á 60 höggum. Hann fór annan hringinn á 65 höggum og er alls á 17 undir pari eftir fyrstu tvo hringina. Þar á eftir kemur Sigurður Arnar Garðarsson á 15 undir pari og næstu menn á 13 undir. Mikil spenna er í kvennaflokki þar sem Heiðrún Anna Hlynsdóttir, sem varð stigameistari GSÍ-mótaraðarinnar í fyrra, fór fyrri hring sinn á 68 höggum og þann síðari á 65 höggum. Hún leiðir kvennaflokkinn á ellefu undir pari. Eva Kristinsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir sækja fast á hæla hennar á tíu höggum undir pari og Katrín Hlynsdóttir er á níu undir pari. Lokahringur mótsins er leikinn í dag. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn Sport Ísland 3 frá klukkan 19:00 í kvöld.
Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Fleiri fréttir Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira