„Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 12:32 Hólmar Örn sér fram á ærið verkefni gegn sterkum sóknarleik KR. Vísir/Sigurjón Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, segir sína menn hafa svarað gagnrýni í upphafi móts vel á vellinum. Hann býst við krefjandi verkefni þegar Valur fær topplið KR í heimsókn í Reykjavíkurslag í kvöld. „
Þetta verður hörkuleikur. Leiktíminn og allt í kringum þetta, staðan í deildinni skemmir ekki fyrir. Þetta er bara gríðarlega spennandi,“ segir Hólmar Örn um leik kvöldsins. Klippa: Hólmar ræðir KR, neikvæða umræðu og krefjandi varnarleik Það má með sanni segja að KR-ingum hafi ekki gengið vel á Hlíðarenda undanfarin ár. Þeir töpuðu 6-1 fyrir Val þar í fyrra og raunar tapað öllum leikjum þar síðustu fimm ár. Fimm töp með markatöluna 3-18 fyrir Val. „Það hefur verið þannig en eins og við sjáum núna í ár virðast þeir vera í hörkustandi og hafa staðið sig gríðarvel í upphafi móts. Það er undir okkur komið að binda enda á þessa sigurgöngu hjá þeim,“ segir Hólmar. Ekki einfalt að stýra vörn gegn KR KR hefur hins vegar farið gríðarvel af stað í deildinni, unnið alla fjóra leiki sína, eftir bikarsigur á Val þar á undan og skorað fleiri mörk en nokkurt annað lið hefur gert í fyrstu fjórum leikjunum í um sjö áratugi. Það mun því reyna á Hólmar og hans menn í vörn Vals í kvöld. „Þeir spila þannig, eins og við fundum í leiknum hérna á Hlíðarenda í fyrra, að hreyfingarnar á fremstu mönnum hjá þeim og svona. Það er erfitt að glíma við það. Þetta er erfitt að glíma við. Það er mikil hreyfing og hlaup allt í kringum þig og þeir láta þig velja á milli alltaf,“ „Í þeim leik, þó hann hafi farið eins og hann fór, leið manni oft eins og maður væri að dekka þrjá og stundum engan. Þeir gera það virkilega vel og þetta virðist vera að smella meira hjá þeim núna. En það eru fullt af möguleikum þegar við vinnum boltann og við þurfum að nýta okkur það,“ segir Hólmar. Hvernig er að stýra vörn við þessar aðstæður? „Það er krefjandi. Maður þarf að taka góðar ákvarðanir á skotstundu. Þú ert kannski með mann og það kemur annað hlaup fyrir framan þig og þá þarf að ákveða hvort þú ætlar að elta hann og sleppa þínum eða öfugt,“ „Það er eitthvað sem við vorum líka að glíma við á móti Stjörnunni, þeir spila ekki ósvipað upp á hvað margir leikmenn fara framarlega á völlinn. Mér fannst við leysa það ágætlega og vonandi verður það sama uppi á teningunum á laugardaginn,“ segir Hólmar. Vanur umræðunni Valsmenn sættu gagnrýni í upphafi móts. Eftir silfur í deild og bikar í fyrra var liðinu spáð sjötta sæti deildarinnar, töpuðu fyrir KR sannfærandi í bikar og svo fyrir nýliðum Þórs í fyrsta leik. Þeir hafa hins vegar svarað þeim gagnrýnisröddum með þremur sigrum í röð og eru aðeins þremur stigum frá toppliði KR. Var umræðan í upphafi móts óvægin gagnvart Val? „Maður er svo sem bara orðinn aðeins vanur þessu verandi í Val. Það hefur aðeins loðað við okkur að það er mikið gert úr öllu sem gerist innan veggja Vals. Á einhverjum tímapunkti hættir þetta að bíta svakalega og svo er í rauninni það eina sem maður getur gert að reyna að svara þessu inni á vellinum. Okkur hefur tekist það ágætlega hingað til,“ Fyrst og fremst hlakkar Hólmar til leiksins. „Hundrað prósent. Vonandi koma sem flestir og verður gott veður. Við búum til einhverja alvöru stemningu og alvöru geðveiki hérna. Þetta verður vonandi skemmtilegur leikur og við klárum þetta,“ segir Hólmar og brosir. Viðtalið má sjá í spilaranum. Valur og KR eigast við á Hlíðarenda í Bestu deild karla klukkan 19:15 í kvöld. Bein útsending hefst klukkan 19:00 á Sýn Sport Ísland.
Valur KR Besta deild karla Íslenski boltinn Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Sjá meira