Alex Zanardi látinn Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 11:00 Segja má að Zanardi sé þjóðhetja á Ítalíu og táknmynd styrks og þrautseigju við mótlæti. Hans verður minnst með mínútu þögn á öllum íþróttaviðburðum um helgina. Massimo Bertolini/NurPhoto via Getty Images Ítalinn Alex Zanardi er látinn 59 ára að aldri. Zanardi átti stórmerkilegan feril, fyrst sem ökuþór og síðar sem gullverðlaunahafi á Ólympíumóti fatlaðra, eftir alvarlegt slys sem breyttu lífi hans.
Fjölskylda Zanardi greindi frá tíðindunum í morgun, að hann hafi látist á föstudagskvöld umvafinn ástvinum. Í tilkynningunni voru dánarorsök ekki gefin upp. „Ítalía missir mikinn meistara og einstakan mann, sem er fær um að breyta hverri áskorun lífsins í lexíu í hugrekki, styrk og reisn,“ sagði Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, á miðlinum X. Zanardi hefur ekki verið samur eftir handhjólaslys sem hann varð fyrir árið 2020 þar sem hann lenti á trukki sem kom úr andstæðri átt við keppni í Toscana. Læknar settu hann í dá vegna alvarlegra áverka á heila sökum slyssins. 20 árum fyrr hafði hann misst báða fætur í kappakstursslysi. Zanardi hafði unnið CART-mótaröðina árin 1997 og 1998 og sneri aftur í þá mótaröð eftir stutt stopp í Formúlu 1. Zanardi hefur unnið til verðlauna á ÓL fatlaðra og í járnkarli.Bryn Lennon/Getty Images for IRONMAN Hann lenti í hræðilegu slysi í keppni helgina eftir árásirnar á tvíburaturnana í september 2001. Við tók löng endurhæfing og Zanardi hannaði eigin gervifætur sem hann grínaðist með að hefðu gert hann hávaxnari. Með þeim lærði hann að ganga aftur og sneri sér að handhjólreiðum. Hann varð á meðal betri íþróttamanna heims og vann til fjögurra gullverðlauna og tveggja silfurverðlauna á Ólympíumótum fatlaðra árin 2012 og 2016. Þá keppti hann í New York-maraþoninu og setti met í járnkarli. Hann sneri aftur á ökubrautina árið 2019 til að keppa fyrir BMW í Rolex 24 keppninni á Daytona-brautinni vestanhafs. Hann keppti þar án gerviútlima og má segja að hann hafi verið virtasti keppandi brautarinnar, sem þó innihélt Formúlu 1-heimsmeistarann Fernando Alonso. Alþjóðaaksturssambandið, FIA, sagði á X að kappakstursferill Zanardi og „ferðalag frá slysi sem breytti lífi hans til gullverðlauna á Ólympíuleikum fatlaðra gerði hann að einum dáðasta keppanda íþróttaheimsins og varanlegu tákni hugrekkis og ákveðni.“ Zanardi býr sig undir kappakstur fyrir BMW árið 2019.Andrea Diodato/NurPhoto via Getty Images Zanardi var þekktur fyrir smitandi bros sitt, mikla persónutöfra og skrautlegar frásagnir. Frans páfi lofaði Zanardi sérstaklega eftir slys hans árið 2020, styrk hans við mótlæti og sendi handskrifað bréf til hans og fjölskyldu hans. Ólympíunefnd Ítalíu hefur kallað eftir mínútu þögn á öllum íþróttaviðburðum í landinu um helgina vegna fráfalls Zanardi.
Andlát Hjólreiðar Ólympíumót fatlaðra Ítalía Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Enski boltinn Fleiri fréttir Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Norris náði ráspólnum aftur Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu út fyrir að vera ekki í formi“ Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Russell vann sprettinn í þriðja sinn Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjá meira