Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. maí 2026 22:41 Á endanum tókst að koma bílnum úr vatninu. Aðsend „Þetta var nú ekkert mál,“ er það fyrsta sem Gunnar Guðjónsson sagði við blaðamann en í torfærukeppni í gær hafnaði Gunnar á hvolfi ofan í á. Hann var í tæpar tuttugu sekúndur að koma sér upp úr vatninu en segir allt hafa litið mun verr út en það var í raun.
Gunnar var einn keppenda í Sindratorfærunni sem fór fram á Hellu í gær. Þegar hann var í öðrum hringnum fór bíllinn út af brautunni og hafnaði á hvolfi ofan í á. Hann var á bólakafi í um nítján sekúndur. Hann segir að bíllinn hafi fests á leiðinni og hafi hann haft mikið fyrir því að koma bílnum aftur af stað. Átökin hafi hins vegar leitt til þess að eitt stykki í bremsudælunni brotnaði og var Gunnar því bremsulaus. „Þetta er ekkert notalegt en þú ferð náttúrulega sjálfkrafa af stað, þú ert búinn að læra að losa sjálfan þig í veltu,“ segir Gunnar en líkt og má geta miðað við hans fyrstu orð var hann ansi hress þrátt fyrir byltuna. „Ég tók líka þarna á flug í fyrstu brautinni og lenti á toppnum þar þannig að ég var búinn að losa mig einu sinni þann daginn.“ Þetta er í annað sinn sem Gunnar keppir í torfæruakstri.Aðsend Lendir maður oft í því að velta bílnum í svona keppnum? „Já, þegar maður er klaufi,“ svarar hann léttur í bragði. „Ég held þetta hafi verið miklu verra fyrir þá sem horfðu á þetta heldur en þann sem var í bílnum og fór ofan í.“ Engin sundleikfimi í Stangarhyl Það lá við að um leið og Gunnar var kominn upp úr ánni fór hann að laga bílinn, enda menntaður vélavirki. Þetta var fyrsta keppnin hans á bílnum og segist hann aldrei hafa keyrt bílinn upp brekku fyrr en hann hóf keppnina í gærmorgun. Þá var þetta í annað skipti sem hann keppti í torfæruakstri yfir höfuð. „Þetta hefur verið draumur síðan ég var krakki,“ segir Gunnar. Hann byrjaði sem aðstoðarmaður Andra Más á Kúrekanum og var svo boðið að aðstoða við smíði á nýjum bíl. Til allrar lukku er öryggisbúnaðurinn í bílnum til fyrirmyndar.Aðsend „Þegar ég var búinn að því þá buðu þeir mér að taka eina keppni, ég þáði og þar með varð skrattinn laus.“ Líkt og kom fram fór Gunnar nær strax að gera við bílinn og segist hann bjartsýnni eftir að hafa varið deginum í dag í viðgerðir. Hann stefnir ótrauður á næstu torfærukeppni í Stangarhyl sem fer fram síðustu helgina í maí. „Fólk verður að mæta í Stangarhyl og sjá hvort það verði ekki einhver upplifun þar. Það er ekkert vatn þar svo fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því,“ segir Gunnar. „Ég get lofað að ég lendi ekki í vatni ef ég tek þátt. Það verður engin sundleikfimi hjá mér.“
Rangárþing ytra Akstursíþróttir Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira