Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Smári Jökull Jónsson skrifar 4. maí 2026 23:31 Borinn Karl Prins sem notaður er við kjarnaboranirnar. Hægra megin má sjá hvernig göng frá meginlandinu til Eyja myndu liggja, frá Krossi í Landeyjum. Vísir/Hjalti/Eyjagöng Stefnt er á að kjarnaborunum - í tengslum við jarðgangagerð til Vestmannaeyja - ljúki í lok árs. Framkvæmdastjóri Eyjaganga er ekki í vafa um að göngin séu arðbær og segir að ef allt gangi að óskum verði hægt að keyra á milli lands og eyja eftir tíu ár.
Þessar vikurnar fara fram kjarnaboranir á Eiðinu á Heimaey en þær eru gerðar til að kanna fýsileika jarðganga á milli lands og Eyja. Félagið Eyjagöng hefur yfirumsjón með verkefninu í samvinnu við Völuberg, Eflu og Vegagerðina. Karl prins er nafn kjarnaborsins sem notaður er til verksins og er engin smásmíði. Hér sést hvar gert er ráð fyrir að keyrt verði upp úr göngum í Vestmannaeyjum.Eyjagöng „Nú ætlum við að bora, vonandi fjögur hundruð metra hérna niður og ná í kjarnasýni. Út frá því getum við greint jarðlög, mælt styrk, sprungur og þéttleika,“ segir Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðingur hjá Völubergi. Nú þegar er búið að bora um 70 metra niður og segir Benedikt jarðsögu Vestmannaeyja koma í ljós. Benedikt Óskar Steingrímsson er jarðfræðingur hjá Völubergi og vinnur við kjarnaborunina.Vísir „Þegar við höfum náð botni hér þá verður tekið saman hér í Eyjum og tækin flutt upp í landeyjasand, suður af Krossi þar sem verður tekin önnur hola, 300 metra djúp.“ „Erum nálægt öllum helstu náttúruperlum“ Hluthafar í Eyjagöngum eru sveitarfélög og ýmis fyrirtæki en markmið félagsins er að eyða óvissu í tengslum við jarðgangnagerð til Eyja. Haraldur Pálsson framkvæmdastjóri Eyjaganga.Vísir „Hvað varðar fjárhagslega burði, við viljum meina að þetta muni standa undir sér. Umferðin, við sjáum hana vera að aukast ár frá ári um suðurlandið og við erum rosalega nálægt öllum helstu ferðamannaperlum Íslands sem eru á Suðurlandi.“ Haraldur segir félagið eiga í góðu samtali við innviðaráðherra. Stefnt er á að rannsóknunum ljúki í lok árs. Göngin næðu frá Krossi og til Vestmannayja og yrði um 18 kílómetrar að lengd.Vísir/Hjalti „Hvenær verður hægt að keyra á milli? Við höfum sett okkur þá sviðsmynd að það væri tíu ár. Þá værum við að fara í rannsóknarferli núna í tvö til þrjú ár og svo fjármögnunarfasa á seinni hluta þess tíma samhliða.“ „Síðan myndum við fara í borun og framkvæmdir sem myndi taka fjögur til fimm ár frá báðum endum. Í kjölfarið þá þyrfti að steypa göngin þannig að þetta yrði í heildina um tíu ár,“ segir Haraldur að lokum.
Vestmannaeyjar Jarðgöng á Íslandi Rangárþing eystra Samgöngur Vegagerð Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira