Golf

Tveir Ís­lendingar á meðal fimm efstu í Dan­mörku

Sindri Sverrisson skrifar
Dagbjartur Sigurbrandsson er ríkjandi Íslandsmeistari.
Dagbjartur Sigurbrandsson er ríkjandi Íslandsmeistari. GSÍ

Tveir íslenskir kylfingar enduðu á meðal fimm efstu á Royal Unibrew Championship golfmótinu í Danmörku í dag. Mótið er hluti af Nordic Golf League sem er þriðja sterkasta mótaröð í Evrópu.

Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson hafnaði í 4. sæti mótsins á samtals 11 höggum undir pari, eftir að hafa spilað frábært golf á þriðja og síðasta hring í dag, á -5 höggum.

Sigurður Arnar Garðarsson kom svo næstur á eftir Dagbjarti á -10 höggum en þeir Dagbjartur voru jafnir fyrir lokahringinn.

Efstu menn, hinn norski Sebastian Syr og Bretinn Eric Mcintosh, enduðu á -14 höggum og Norðmaðurinn Alexander Settemsdal varð þriðji á -12 höggum, einu höggi fyrir ofan Dagbjart sem fékk þrjá fugla á síðustu þremur holunum.

Sigurður Arnar hefur nú endað í efstu níu sætunum á þremur af fyrstu fjórum mótum sínum á tímabilinu.

Hlynur Bergsson komst einnig í gegnum niðurskurð en lék síðasta hringinn á +3 höggum og hafnaði í 42. sæti, á samtals -1 höggi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×